Bandarískur þingmaður sakaður um að láta misnotkun óáreitta Kjartan Kjartansson skrifar 6. júlí 2018 14:54 Jordan (fremstur) hefur verið nefndur sem næsti leiðtogi repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Vísir/EPA
Þingmaður Repúblikanaflokksins sem talað hefur verið um sem mögulegan leiðtoga þeirra í neðri deild þingsins er sakaður um að hafa vitað af kynferðislegri misnotkun á íþróttamönnum en aðhafast ekkert þegar hann var aðstoðarþjálfari glímuliðs Ríkisháskóla Ohio fyrir hátt í þrjátíu árum. Að minnsta kosti fimm menn hafa sakað Jim Jordan, fulltrúadeildarþingmann Repúblikanaflokksins, um að hafa látið misnotkun læknis glímuliðsins á allt að þúsund íþróttamanna og nemenda óáreitta þegar hann vann við skólann frá 1986 til 1994. Jordan hefur hafnað ásökununum. Læknirinn, Richard Strauss, lést árið 2005, en Ríkisháskólinn í Ohio tilkynnti í apríl að hann væri að rannsaka ásakanir um að hann hefði misnotað glímumenn í liðinu frá miðjum 8. áratugnum og langt fram á 10. áratuginn. Jordan ber því við að hann hafi aldrei vitað af brotum Strauss þar til fyrrverandi nemendur stigu fram í vor. Sumir fyrrverandi nemendur skólans efast um það og segja að Jordan hljóti að hafa vitað af misnotkuninni. Strauss hafi verið þekktur fyrir að baða sig reglulega með nemendum og að snerta þá á óviðeigandi hátt. Þingmaðurinn hefur jafnframt sett spurningamerki við að ásakanirnar komi fram nú þegar aðeins nokkrir mánuðir eru til þingkosninga. Jordan hefur verið nefndur sem mögulegur næsti forseti fulltrúadeildarinnar. Donald Trump forseti hefur ennfremur tekið upp hanskann fyrir Jordan og segist alls ekki trúa þeim hafa sett ásakanirnar fram. „Ég trúi þeim alls ekki, ég trúi honum. Jim Jordan er einn mest framúrskarandi maður sem ég hef hitt frá því ég kom til Washington. Ég trúi honum 100%. Engin spurning í mínum huga. Ég trúi Jim Jordan 100%. Hann er framúrskarandi maður,“ sagði forsetinn.
Bandaríkin Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira