Ólsarar vígðu nýjan völl með sigri og svakaleg dramatík í grannaslagnum Anton Ingi Leifsson skrifar 13. júní 2018 21:16 Gervigrasið kemur vel út í Ólafsvík. vísir/twitter-síða Ólsara
Víkingur Ólafsvík vígði nýjan gervigrasvöll með 3-0 sigri á Leikni úr Reykjavík en þrír leikir fóru fram í Inkasso-deildinni í kvöld. Víkingur skoraði þrjú mörk í síðari hálfleik gegn Leikni. Alexander Helgi Sigurðsson skoraði fyrsta markið á 50. mínútu og þeir Emmanuel Keke og Kwame Quee bættu við sitt hvoru markinu í uppbótartíma. Ólsarar eru komnir í fjórða sæti deildarinnar en þeir eru með þrettán stig, fjórum stigum á eftir toppliði ÍA. Leiknismenn eru hins vegar í tíunda sæti með sex stig. Það var heldur betur fjör í grannaslag Magna og Þórs en Þór vann 2-1 sigur í leik liðanna á Grenivík í kvöld. Bergvin Jóhannsson kom Magna yfir á 70. mínútu en einungis tveimur mínútum síðar fékk Agnar Darri Sverrisson sitt annað gula spjald. Magnamenn því einum færri. Þórsarar voru ekki lengi að snúa leiknum sér í vil. Ívar Sigurbjörnsson skoraði sjálfsmark á 85. mínútu og staðan jöfn 1-1 en sigurmarkið skoraði Ignacio Gil þremur mínútum fyrir leikslok. Þór er í þriðja sæti deildarinnar með fjórtán stig, stigi á eftir HK sem er í öðru sætinu og þremur stigum á eftir toppliði ÍA. Magnamenn eru á botninum með þrjú stig. Minnsta fjörið var í toppslagnum í Inkasso en HK og ÍA skoruðu ekki mark í kvöld. Leik liðanna lauk með markalausu jafntefli og staða liðanna því óbreytt; Skagamenn á toppnum, stigi á undan HK sem er í öðru sætinu. Úrslit og markaskorarar eru fengin frá fótbolti.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarðvíkingar að kveikja á sér á hárréttum tíma Körfubolti „Einn stærsti sigur hjá félaginu í körfubolta“ Sport Dagskráin í dag: Formúlan á fullu og toppslagur í Bónus Sport Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti Annar tónn í Trump sem ráðleggur Íran að halda sig fjarri HM Fótbolti „Þórsarinn er svo geggjaður“ Handbolti Aron Einar stóð í stríði í svekkjandi tapi Fótbolti Fleiri fréttir „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Sjá meira