Landsmenn sjá allir til sólar á morgun Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. maí 2018 08:03 Hlýjast verður norðaustanlands á morgun. Skjáskot/veðurstofa
Á morgun er gert ráð fyrir að hæðarhryggur fari yfir landið og því lægir vind og rofar til. Á einhverjum tímapunkti munu allir landsmenn sjá til sólar, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í dag er hins vegar útlit fyrir suðaustlæga átt á bilinu 5-13 m/s. Víða um land verður rigning með köflum, einkum þó sunnan- og vestanlands. Tvö regnsvæði ganga yfir landið í dag og svolítið hlé verður á rigningunni á milli þeirra. Hiti verður á bilinu 7 til 17 stig og hlýjast norðaustantil á landinu. Lægð suður af landi veldur rigningunni í dag og í nótt fer lægðarmiðjan til norðurs yfir landið og áfram verður vætusamt. Í fyrramálið snýst svo í skammvinna vestanátt í kjölfar lægðarinnar og úrkoman fer að minnka, með áðurgreindum afleiðingum.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á mánudag:Vestan 8-13 m/s um morguninn og víða rigning, en lægir og styttir upp með deginum. Breytileg átt 3-8 síðdegis, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast austanlands.Á þriðjudag:Suðaustan 10-15 suðvestan- og vestanlands með rigningu og súld og hita 8 til 12 stig. Suðaustan 3-10 á Norður- og Austurlandi, léttskýjað og hiti 15 til 20 stig.Á miðvikudag:Suðvestan 3-8, skýjað og smásúld eða þokuloft, hiti 7 til 12 stig. Bjartviðri norðaustantil á landinu með hita að 20 stigum.Á fimmtudag, föstudag og laugardag:Útlit fyrir vestanátt. Skýjað vestanlands og sums staðar þokuloft, en bjart með köflum annars staðar. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast austast á landinu.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira