„Þær eru allar svo miklir meistarar“ Stefán Árni Pálsson skrifar 28. maí 2018 13:30 Hjördís og Ólöf Rún með bókina.
Hjördís Hugrún Sigurðardóttir formaður Stuðverks - skemmtifélags verkfræðikvenna og verkefnastjóri hjá ABB í Zürich skrifaði bókina Tækifærin ásamt móður sinni Ólöfu Rún Skúladóttur fjölmiðlakonu og leiðsögumanni en bókin kom út árið 2014. Í bókinni eru viðtöl við 50 íslenskar konur; frumkvöðla, forstjóra, vísindamenn, sérfræðinga og ævintýrakonur almennt. Konurnar starfa víða um heim, og allar hafa þær lokið námi á sviði verkfræði, tækni eða raunvísinda. Athyglisverðar frásagnir og góð ráð fléttast saman við sögur af náms- og starfsferli kvennanna fimmtíu. „Þær eru allar svo miklir meistarar og mér finnst dýrmætt að vita af þeim öllum og þekkja þeirra sögur. Þetta er í raun stemmnings bók með áhugaverðum ráðum og sögum. Að velja hvað maður vill læra og svo starfa við getur verið snúið. Þær þora að vera einlægar og það er mjög hvetjandi að lesa viðtölin. Þegar litið er til einstaklinga sem náð hafa langt virðist oft sem allt hafi alltaf gengið upp hjá viðkomandi, en yfirleitt er miklu meira á bak við það. Við viljum að allir hafi færi á að lesa viðtölin og ákváðum því að birta þau eitt af öðru á heimasíðunni tækifærin.is,“ segir Hjördís Hugrún en nú ætla þær mæðgur að gefa út allar þessar sögur. Þær mæðgur tóku viðtal við 50 konur í ferlinu.Á Instagram síðunni Tækifærin verður þar að auki hægt að fylgjast með. „Við hvetjum líka bæði stráka og stelpur til að deila mynd á samfélagsmiðlum af einhverri sem þeim þykir vera meistari, undir myllumerkinu #húnermeistari og hvetjum einnig sérstaklega allar stelpur til að deila ráðum, sem þú myndir gefa yngri þér, undir myllumerkinu #jáhúnáséns,“ bætir Hjördís Hugrún við. Á næstunni verða viðtölin úr bókinni Tækifærin gerð aðgengileg á heimasíðunni tækifærin.is.
Mest lesið Upplifði létti þegar mamma dó Lífið Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Lífið Fréttatía vikunnar: Vík burt, hantaveira og Netflix-uppnám Lífið Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Lífið Fögnuðu aldarafmæli með pompi og prakt Lífið Bakaríið í beinni á Vísi Lífið Ástarsorgin átakanleg en gjöful Tónlist Jenner segist hafa veikst af Ozempic Lífið Lítið kjöt á beinum rándýrsins Gagnrýni Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Þjóðkirkjan sé tímaskekkja Oddvitaáskorunin: Freistandi að setja nokkur mál í íbúakosningu Upplifði létti þegar mamma dó Bakaríið í beinni á Vísi Fréttatía vikunnar: Vík burt, hantaveira og Netflix-uppnám Oddvitaáskorunin: Maturinn þarf að vera fallegur og litríkur Fögnuðu aldarafmæli með pompi og prakt Jenner segist hafa veikst af Ozempic Hundrað ára Attenborough djúpt snortinn Oddvitaáskorunin: Alæta á tónlist Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Bonnie Tyler haldið sofandi eftir garnarof Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Fögnuðu sjötíu árum og heiðruðu félaga Reyndi við lúmskar Friends-spurningar Leiðir skilja ekki hjá Charlize Theron og Balta Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Ungir skáksnillingar á Laufásborg unnu til verðlauna á EM Oddvitaáskorunin: Fær ekki lengur að velja tónlistina á viðburðum Oddvitaáskorunin: Byrjar settið á tjáningardansi við Euphoria Látlausir kjólar hafa átt sviðið en það er að breytast Með eina þriggja mánaða í vinnunni Oddvitaáskorunin: Erfðagóssið færi frekar til versta óvinar „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Tapaði ellefu milljónum Oddvitaáskorunin: Á í haltu mér - slepptu mér sambandi með morgunmat Sjá meira