Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. júlí 2026 10:35 Kavinsky var stór í frönsku hústónlistarsenunni. EPA Franski plötusnúðurinn og elektrópopparinn Kavinsky, sem er þekktastur fyrir slagarann „Nightcall“ og spilaði á lokahátíð Ólympíuleikanna í París 2024, er látinn, fimmtíu ára að aldri.
Fréttamiðillinn France 24 greinir frá því að Kavinsky, sem hét réttu nafni Vincent Belorgey, hafi fundist látinn á heimili sínu í París á þriðjudagskvöld. Embætti saksóknara í Parísarborg segir að rannsókn sé hafin á dánarorsök og kringumstæðum andlátsins en ekkert bendi til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Langþekktastur fyrir „Nightcall“ Vincent Belorgey fæddist í París 31. júlí 1975 og var lykilpersóna í frönsku teknó- og hústónlistarsenunni ásamt þekktari nöfnum á borð við Daft Punk og Martin Solveig. Kavinsky öðlaðist heimsfrægð með laginu „Nightcall“ þegar danski leikstjórinn Nicolas Winding Refn notaði það í opnunaratriði Hollywood-myndarinnar Drive (2011) með Ryan Gosling, Carey Mulligan og Ron Perlman í aðalhlutverkum. Lagið hafði komið út ári fyrr og var pródúserað af Kavinsky og Guy-Manuel de Homem-Chriso, annars helmings Daft Punk. Kavinsky gaf út tvær breiðskífur á ferlinum, OutRun árið 2013 og Reborn árið 2022, og fjölda smáskífa. Hann var einnig viðriðinn franska kvikmyndagerð og lék meðal annars í myndunum Nonfilm (2001) og Steak (2007) eftir franska leikstjórann Quentin Dupieux. Eftir útgáfu fyrri plötu sinnar tók Kavinsky sér sjö ára pásu frá tónlist en sneri aftur 2021 og á síðustu árum kom hann meðal annars fram á lokahátíð Ólympíuleikanna í París árið 2024.
Andlát Tónlist Frakkland Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira