Hvassviðrið um hvítasunnuna getur hæglega feykt trampólínum langar leiðir Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. maí 2018 07:51 Hún er ekki kræsileg vindaspáin fyrir hádegið á laugardag fyrir sunnanvert, vestanvert og austanvert landið. veðurstofa íslands
Suðaustan hvassviðrið sem Veðurstofa Íslands spáir um hvítasunnuhelgina getur jafnvel orðið að stormi að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings. Vindstyrkurinn geti hæglega feykt trampólínum langar leiðir, svo dæmi sé tekið, en með vindinum fylgir einnig talsverð rigning. Svona veður er óvenjulegt á þessu árstíma að því er segir á vef Veðurstofunnar en útlit er fyrir mesta hvassviðrið á laugardag. Þá verður hvassast suðvestanlands en á norðanverðu landinu verður vindurinn aðeins skárri og ekki jafnmikil úrkoma. Lægðin er þó ekki úr sögunni á sunnudag þar sem hún tekur sér stöðu skammt vestur af landinu og viðheldur stífum vindi með vætu allan þann dag ef spárnar ganga eftir. Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga: Vaxandi suðaustanátt, 13-20 m/s síðdegis, talsverð rigning og snarpar hviður við fjöll. Heldur hægari og þurrt fram á kvöld á Norður- og Austurlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast norðaustan til á landinu. Snýst í hægari suðvestanátt vestanlands í kvöld og dregur úr úrkomu. Suðvestan 5-13 á morgun og skúrir eða slydduél vestan til, en léttir til á austanverðu landinu. Hiti 3 til 10 stig, mildast austast.Á föstudag:Suðvestan 5-13 m/s og dálitlir skúrir eða slydduél vestan til, en léttir til á austanverðu landinu. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast austanlands. Á laugardag:Suðaustan 15-23, hvassast suðvestanlands. Víða rigning, talsverð eða mikil úrkoma á sunnanverðu landinu. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast fyrir norðan. Á sunnudag (hvítasunnudagur):Sunnan- og suðvestanátt, víða 13-18 m/s. Rigning og skúrir, en þurrt norðaustan til á landinu. Hiti 3 til 10 stig, mildast á Norðausturlandi. Á mánudag (annar í hvítasunnu):Sunnan 8-13 með skúrum eða rigningu, en áfram þurrt norðaustan til. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag:Útlit fyrir suðaustanátt með rigningu sunnan- og vestanlands, en þurrt fyrir norðan og austan. Hiti 6 til 12 stig, hlýjast norðan til.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira