Það var í byrjun árs sem hið kínverska CNOOC og hið norska Petoro skiluðu inn sérleyfi sínu til olíuleitar á Drekasvæðinu. Samstarfsaðili þeirra, íslenska félagið Eykon, vildi halda áfram leitinni en Orkustofnun taldi Eykon hvorki hafa til þess fjárhagslega né tæknilega burði og afturkallaði leyfi félagsins.
Eykon lýsti því þá yfir að sú ákvörðun yrði kærð til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála en hefur nú fallið frá kærunni. Talsmenn Eykons vilja að sinni ekki tjá sig um málið né um framtíðaráform félagsins.

Sú staða er uppi að enginn er lengur með leyfi til að leita að olíu í lögsögu Íslands en leyfisveitingar eru í höndum Orkustofnunar. En má ætla að olíuleitinni sé þar með lokið?
Nei, segir orkumálastjóri. Það verði hins vegar ekki farið í annað útboð án samráðs við stjórnvöld því til þess þurfi fjárveitingar frá Alþingi til að mæta eftirlitshlutverki Orkustofnunar.

„Þannig að fjárveitingavaldið verður þarna alltaf með,“ segir Guðni.
-Þannig að þetta er í raun pólitísk ákvörðun hvort það verði haldið áfram?
„Já, að minnsta kosti hvort það verði haldið áfram á ákveðnum tímapunkti. Hins vegar eru auðvitað kolvetnislögin fyrir hendi og það er enginn sem hefur lagt til að þeim verði breytt.“
Guðni segir að þegar erlendu félögin drógu sig út hafi olíuverð búið að vera lágt lengi. Fyrirtæki hafi í framhaldi af því verið að draga sig út úr nýjum og lítt könnuðum svæðum þar sem þau sjái ekki fram á aukna eftirspurn á næstu árum.
„Þetta sjáum við í Færeyjum. Þetta sjáum við á Grænlandi. Þetta sjáum við í Alaska og víðar.“

Orkumálastjóri segir leitina til þessa hafa skilað mjög verðmætum gögnum um Drekasvæðið.
„Þarna er á engan hátt búið að útiloka að finnist olía. Þessi ákvörðun CNOOC, að draga sig út úr leyfinu, hún byggðist fyrst og fremst á því að þarna myndi ekki á fyrirsjáanlegum tíma verða byrjuð olíuvinnsla og þar með væru ekki þeirra hagsmunir þannig að þeir myndi halda verkinu áfram,“ segir Guðni.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: