Drónar eða flygildi eru talsvert notuð af björgunarsveitum.Mynd/Gunnar Ingi Halldórsson
Björgunarsveitin Dalvík fékk í vikunni viðurkenningu frá Samtökum evrópskra neyðarlína vegna notkun dróna sveitarinnar í björgun tveggja erlendra ferðamanna í Siglufjarðarskriðum árið 2016.
Formaður sveitarinnar, Haukur Arnar Gunnarsson, tók á móti viðurkenningunni við hátíðlega athöfn í Ljublijana í Slóveníu.
Í myndbandinu hér að neðan má sjá umfjöllun drónaframleiðandans DJI um björgunarafrekið.