Kínversk geimstöð hrapar til jarðar Kjartan Kjartansson skrifar 1. apríl 2018 16:29 Tiangong-1 dregst nú eftir efstu lögum lofthjúps jarðar áður en geimstöðin hrapar loks til jarðar. Myndin var tekinn á eyjunni Réunion í Indlandshafi. Vísir/AFP
Útlit er fyrir að kínverska geimstöðin Tiangong-1 hrapi til jarðar og brenni upp í lofthjúpnum í dag eða nótt. Nær engar líkur eru taldar á því að brak úr geimstöðinni nái alla leið til jarðar á byggðu bóli. Yfirleitt væri hrapi geimstöðvar sem tekin hefur verið úr notkun stýrt nákvæmlega þannig að brakið lenti í suðurhöfum. Kínverjar misstu hins vegar samband við Tiangong-1 árið 2016. Geimstöðin er nú við efri mörk lofthjúps jarðar og var búist við því að hún hrapaði einhvern tímann á milli miðnættis í gær og aðfararnætur mánudags. Tiangong-1 er tíu metra löng og 8,5 tonn að þyngd. Talið er að allt að 20-40% af geimstöðinni gæti náð alla leið til yfirborðs jarðar, það er á bilinu eitt og hálft til þrjú og hálft tonn. Richard Crowther, aðalverkfræðingur Evrópsku geimstofnunarinnar (ESA), segir við breska ríkisútvarpið BBC að vel sé fylgst með hrapinu vegna þess hversu massamikil og sterkbyggð geimstöðin er. Þrettán geimvísindastofnanir fylgjast nú með sporbraut Tiangong-1. „Meirihluti geimstöðvarinnar brennur líklega upp þegar hún kemur inn í lofthjúpinn og mestar líkur eru á því að brot sem komast í gegn lendi í hafinu,“ segir Crowther.
Tækni Vísindi Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Innlent Fleiri fréttir Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Sjá meira