Lífið

Helga Möller móðgar Clausen-systur

Jakob Bjarnar skrifar
Þórunn Erla telur umfjöllun RÚV um framlag Íslands hið undarlegasta en þær Clausen-systur eru síður en svo ánægðar með afgreiðslu Helgu á laginu.
Þórunn Erla telur umfjöllun RÚV um framlag Íslands hið undarlegasta en þær Clausen-systur eru síður en svo ánægðar með afgreiðslu Helgu á laginu.
„Vá dómharkan og neikvæðnin!“ skrifaði Ragnheiður Elín Clausen þula á Facebook-vegg sinn á laugardagskvöldið. Hún veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið.

Hún hafði verið að fylgjast með Eurovisionþætti Felix Bergssonar Alla leið þar sem íslenska framlagið hlaut ekki lofsamlega einkunn. Ekki síst frá Helgu Möller söngkonu, en hún fór fyrst út til að keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision árið 1986 ásamt Eiríki Haukssyni og Pálma Gunnarssyni. Önnur í þættinum, þau Friðrik Dór, Guðrún Gunnarsdóttir og Jóhannes Þór voru ekki hrifin heldur, en Felix vildi hins vegar sjá björtu hliðarnar.

Ragnheiður Elín á ekki til orð

Vísir greindi sérstaklega frá þessari útreið sem lag Þórunnar Erlu Clausen í flutningi Ara Ólafssonar hlaut. Helga sagði lagið gamaldags og það kom henni á óvart að það skyldi hafa sigrað í undankeppninni hér heima. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins og Eurovisonsérfræðingur, bætti reyndar um betur og sagði að sér þætti lagið ótrúlega leiðinlegt, óeftirminnilegt og að Ísland ætti nánast engan séns á að komast upp.

Þetta er alveg nýtt, yfirleitt er íslenska framlagið hlaðið lofi í þáttum sem þessum, burtséð frá öllu og öllu og væntingavísitalan skrúfuð í botn. Þannig að ekki þarf að koma á óvart að Ragnheiði hafi brugðið í brún, en hún er einlægur Eurovision-áhugamaður og hefur farið utan til að fylgjast með keppninni, ekki síst í seinni tíð en systir hennar Þórunn Erna Clausen hefur átt góðu gengi að fagna í keppninni sem höfundur og flytjandi.

„Ég á ekki til orð. Man ekki eftir svona umfjöllun,“ segir Ragnheiður Elín alveg standandi bit.

Furðulegt að RÚV skuli afgreiða sitt framlag á þennan hátt

Þórunn Erna er einmitt höfundur sigurlagsins og hún leggur orð í belg á síðu systur sinnar. Segist reyndar ekki hafa séð þáttinn ennþá.

„En finnst alltaf einkennilegt þegar einhver setur sig í mjög neikvætt dómarasæti gagnvart listsköpun fólks og vinnu. Það er víst ekki hægt að semja tónlist sem hentar öllum. Þetta er gert öðruvísi í öðrum löndum sjáum við, þar stendur sjónvarpsstöðin vel á bakvið lögin og reyna að lýsa þeim á jákvæðan hátt en ekki svona gert ...“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.