Klesstu stolinn bíl og stungu af Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. mars 2018 06:56 Þríeykið reyndi að hlaupa af vettvangi. Vísir/eyþór
Þrír einstaklingar reyndu að hlaupa af vettvangi eftir að hafa valdið árekstri á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar skömmu fyrir klukkan eitt í nótt. Lögreglunni tókst þó að hafa hendur í hári þeirra skömmu eftir áreksturinn og í skeyti hennar kemur fram að ökumaður bifreiðarinnar sé grunaður um að hafa verið vímaður við aksturinn. Þá er þríeykið jafnframt sagt hafa tekið bifreiðina sem þeir óku, og klesstu, ófrjálsri hendi ásamt því að hafa fíkniefni í fórum sínum. Að sama skapi eru þeir sagðir hafa ekið bifreiðinni á móti rauðu ljósi. Ekki fylgir sögunni hvert ástand hins stolna bíls er eftir áreksturinn en meiðsl þjófanna eru sögð minniháttar. Lögreglan handtók jafnframt konu, sem er sögð hafa verið í annarlegu ástandi, við Barnaspítala Hringsins á tíunda tímanum í gærkvöldi. Þegar verið var að koma henni fyrir í fangaklefa, þar sem hún hefur mátt dvelja í nótt, segir lögreglan að á henni hafi fundist fíkniefni. Þá var ekið á gangandi vegfaranda við Reykjavík á um svipað leyti. Sjúkrabifreið flutti vegfarandann á slysadeild en ekki er vitað um meiðsl hans að svo stöddu.
Lögreglumál Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira