Hamagangur í Höfðunum Stefán Ó. Jónsson skrifar 21. mars 2018 06:49 Bíl var meðal annars ekið utan í lögreglubifreið. Vísir/eyþór
Það var handagangur í öskjunni í nótt þegar lögreglan hafði hendur í hári þriggja einstaklinga sem reyndu að brjótast inn í fyrirtæki í Höfðahverfi Reykjavíkur. Þegar lögreglumenn mættu á vettvang um klukkan 3 í nótt sáu þeir bíl þjófanna og gáfu ökumanni hans merki um að stöðva aksturinn. Þegar þríeykið rak augun í lögreglumenninna ákvað ökumaðurinn, í stað þess að stöðva, að stíga bensínið í botn á fyrsta gíri og aka utan í lögreglubifreið sem á móti kom. Bílnum var því næst ekið á móti rauðu ljósi yfir gatnamót við Höfðabakka og stöðvaði ekki fyrr en í Breiðhöfða. Þar tókst lögreglumönnum að handsama tvo en sá þriðji hljóp í burtu. Hann var svo að lokum handtekinn við Bíldshöfða. Um er að ræða tvo karla og eina konu sem öll voru flutt í fangageymslu þar sem þau voru vistuð vegna rannsóknar málsins. Þau eru grunuð um „innbrotstilraun, að fara ekki að fyrirmælum lögreglu, umferðaróhapp, akstur gegn rauðu ljósi, akstur undir áhrifum fíkniefna, vörslu fíkniefna, brot á vopnalögum og mögulega fleiri brot,“ eins og segir í skeyti lögreglunnar.
Lögreglumál Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira