Lofa sex milljóna króna fundarlaunum fyrir stolinn tölvubúnað Ingvar Þór Björnsson skrifar 25. mars 2018 16:04
Eigendur tölvubúnaðar sem stolið var úr gagnaveri á Suðurnesjum fyrir nokkrum vikum heita sex milljónum króna í fundarlaun til þess sem getur veitt áreiðanlegar upplýsingar um hvar búnaðinn er að finna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum. Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að ábendingar um búnaðinn þurfi að berast fyrir 12. apríl næstkomandi og að fundarlaunin verði greidd til þess sem lögregluyfirvöld staðfesta að hafi fyrstur komið á framfæri ábendingu um hvar búnaðinn er að finna. Lögfræðistofa sem fer með málið fyrir hönd eigenda búnaðarins sér um að annast greiðslu fundarlauna.Tveir íslenskir karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikillar rannsóknar lögreglunnar á Suðurnesjum á þremur innbrotum í gagnaver í Reykjanesbæ og Borgarbyggð þar sem samtals 600 tölvum var stolið. Innbrotin áttu sér stað á tímabilinu frá 5. desember 2017 til 16. janúar 2018. Verðmæti þýfisins eru talin nema rúmum 200 milljónum króna. Þeir sem búa yfir upplýsingum um málið eru hvattir til að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma: 8320253.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Fleiri fréttir Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Sjá meira