Kæra framkvæmdaleyfi Brúarvirkjunar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. mars 2018 14:45 Frá Tungufljóti en Brúarvirkjun virkjar rennsli fljótsins. mannvit
Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðurlands hafa kært nýtt framkvæmdaleyfi vegna Brúarvirkjunar til úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála. Er þess einnig krafist að framkvæmdir verði stöðvaðar. Í tilkynningu segir að samtökin telji málsmeðferð sveitarfélagsins Bláskógabyggðar við veitingu framkvæmdaleyfisins andstæða lögum. Þá séu jafnframt á henni bæði form-og efnisannmarkar sem eigi að leiða til ógildingar. „Í Morgunblaðinu hinn 26. mars 2018 kom fram að Sigurður Ingi Jóhannesson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hafi tekið fyrstu skóflustungu að byggingu Brúarvirkjunar í Árnessýslu í liðinni viku. Kærufrestur framkvæmdaleyfis Bláskógabyggðar er ekki liðinn. Í fréttinni var jafnframt haft eftir Ingólfi Margeirssyni landeiganda á Brú að nú sé „virkjað í sátt við náttúru og samfélag“ og að framkvæmdin hafi „mjög lítil áhrif á umhverfið“ þar sem um rennslisvirkjun sé að ræða með „litla inntakstjörn“. Allt hið skáletraða er rangt hjá landeigandanum. Brúarvirkjun virkjar rennsli Tungufljóts í uppsveitum Árnessýslu. Fljótið er meðal mestu lindáa Íslands en þær eru sjaldgæfar á heimsvísu og hafa hátt náttúruverndargildi. Rétt við framkvæmdasvæðið er eitt aðalvatnstökusvæði Bláskógabyggðar og því eru miklir almannahagsmunir í húfi. Framkvæmdasvæðið er ósnortið, á náttúruminjaskrá og þar er að finna náttúrlegan birkiskóg og votlendi, sem njóta sérstakrar verndar skv. 61. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013. Framkvæmdin sjálf felur í sér byggingu um 600 m langrar og allt að 12 m hárrar stíflu og gerð tæpra níu hektara uppistöðulóns í landi Haukadals, auk nýs vegar, veituskurða og raflínu um 20 km leið. Að nefna svo umfangsmikið uppistöðulón „tjörn“ er fjarstæðukennt og virðist vera vísvitandi blekking,“ segir í tilkynningu Landvernar og Náttúruverndarsamtaka Suðurlands.Saka landeigandann um að fara með rangt mál hvað varðar áhrif á náttúruna Þar segir jafnframt ljóst að engin sátt ríki um framkvæmdina: „Í áliti Skipulagsstofnunar segir að „helstu neikvæðu áhrif fyrirhugaðrar framkvæmdar felist í breyttri ásýnd fyrirhugaðs framkvæmdasvæðis... Að framkvæmdum loknum mun svæðið einkennast af misumfangsmiklum mannvirkjum og verulega skertu rennsli í Tungufljóti á um þriggja km löngum kafla... sjónræn áhrif á þá ferðamenn sem leggja leið sína upp með Tungufljóti frá núverandi þjóðvegi munu verða mjög neikvæð. …áhrif á ásýnd og landslag fyrirhugaðra framkvæmda verða talsvert neikvæð.“ Þá segir í álitinu að „Áhrif á gróður verða því staðbundið talsvert neikvæð.“ Landeigandinn sem á að gæta fjárhagslegra hagsmuna, Margeir Ingólfsson, fer því líka með rangt mál hvað varðar áhrif á náttúruna. Þá er ljóst að engin sátt ríkir um framkvæmdina. Þannig kærðu þrenn félagasamtök fyrra framkvæmdaleyfið frá í nóvember sl., sbr. einnig aðild Náttúruverndarsamtaka Suðurlands að kæru dags. 26. mars 2018 á nýja framkvæmdaleyfinu, sem gefið var út 21. febrúar sl. og auglýst 2. mars sl. Samtökin krefjast ógildingar framkvæmdaleyfisins m.a. vegna þess að ekki hafi verið sýnt fram á að brýnir almannahagir krefjist framkvæmdarinnar, eins og þarf að gera þegar náttúruminjum sem njóta verndar er eytt. Þá telja samtökin Bláskógabyggð hafa brotið rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar með því að fullnægja ekki rannsóknaskyldu á mögulegum áhrifum framkvæmdarinnar á eitt helsta vatnsból sveitarfélagsins. Samtökin benda ennfremur á að jarðfræðirannsóknir séu afar takmarkaðar, m.a. hvað varðar lekt, sprungur og misgengi innan framkvæmdasvæðisins og hvað varðar hugsanleg áhrif framkvæmdanna á grunnvatnskerfi Geysissvæðisins. Þá telja samtökin framkvæmdina vera í algerri andstöðu við ákvæði gjafabréfs Kristian Kirk sem ánafnaði Skógrækt ríkisins jörðina Haukadal til friðunar og skógræktar. Viðtakandi gjafagernings er bundinn af skilyrðum gefanda samkvæmt íslenskum samningarétti og því telja samtökin óleyfilegt að eyða a.m.k. fimm hekturum af birkiskógi.“
Umhverfismál Tengdar fréttir Báðu sérstaklega um umhverfismat HS Orka fór þess á leit við Skipulagsstofnun að 9,9 megavatta virkjun í Tungufljóti yrði tekin í fullt umhverfismat. Matsskylda fyrir virkjun af þessari stærðargráðu er ekki bundin í lög. Skipulagsstofnun féllst á erindi fyrirtækisins. 5. mars 2016 07:00 Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sjá meira
Báðu sérstaklega um umhverfismat HS Orka fór þess á leit við Skipulagsstofnun að 9,9 megavatta virkjun í Tungufljóti yrði tekin í fullt umhverfismat. Matsskylda fyrir virkjun af þessari stærðargráðu er ekki bundin í lög. Skipulagsstofnun féllst á erindi fyrirtækisins. 5. mars 2016 07:00