Landsmönnum fjölgaði um þrjú prósent Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. mars 2018 10:08 330.559 bjuggu í þéttbýli og fjölgaði um 13.655 á milli ára en í dreifbýli og smærri byggðakjörnum bjuggu 22.048. vísir/ernir
Þann 1. janúar síðastliðinn voru landsmenn samtals 348.450 og hafði þeim þá fjölgað um 10.101 frá því á sama tíma árið 2017, eða um þrjú prósent. Konum fjölgaði um 2,1 prósent, voru 170.850, en körlum fjölgaði um 3,8 prósent, voru 177.600. Þetta kemur fram í mannfjöldatölum sem birtar voru á vef Hagstofunnar í dag. „Talsverð fólksfjölgun var á höfuðborgarsvæðinu en íbúum þar fjölgaði um 5.606 í fyrra eða 2,6%. Hlutfallslega varð þó mest fólksfjölgun á Suðurnesjum, 7,4%. Einnig fjölgaði íbúum á Suðurlandi (4,6%), Norðurlandi eystra (2,6%), Austurlandi (2,4%) og Vesturlandi (2%), en minna á Vestfjörðum (1,8%) og Norðurlandi vestra (0,5%),“ segir á vef Hagstofunnar. Þá bjuggu 330.559 í þéttbýli og fjölgaði um 13.655 á milli ára en í dreifbýli og smærri byggðakjörnum bjuggu 22.048. Kjarnafjölskyldur voru svo 82.102 hinn 1. janúar síðastliðinn en skiptingu kjarnafjölskyldna má sjá á myndinni hér fyrir neðan.Á myndinni má sjá skiptingu kjarnafjölskyldna.hagstofan„Alls voru 74 sveitarfélög á landinu 1. janúar 2018, en það er óbreyttur fjöldi frá fyrra ári. Sveitarfélögin eru misstór. Alls var íbúatala sjö sveitarfélaga undir 100 en undir 1.000 í 40 sveitarfélögum. Einungis níu sveitarfélög höfðu yfir 5.000 íbúa.“Nánar má lesa um málið á vef Hagstofunnar.
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Sjá meira