Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Birgir Olgeirsson skrifar 9. október 2026 13:46 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir viðbótarkostnað ríkissjóðs vegna aðgerðanna til að tryggja sátt á vinnumarkaði nema 1,6 milljörðum króna. Vísir/Viktor Freyr Viðbótarkostnaður ríkissjóðs vegna aðgerðanna sem kynntar voru í gær til að tryggja sátt á vinnumarkaði nemur 1,6 milljörðum króna, að sögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Hún segir fyrri aðgerðapakka hafa numið tugum milljarða en áherslan nú hafi verið á breytingar á úrræðum og nýtingu fjár sem þegar hafði verið tekið frá.
Kristrún segir stærsta muninn á aðgerðunum nú og því sem síðustu ríkisstjórnir hafi gert vera að útgjöldin séu ekki aðalatriðið heldur útfærsla og afmörkun aðgerðanna. „Við vorum með fjárheimildir til staðar fyrir mikið af þeim úrræðum sem hér um ræðir sem við vorum búin að taka frá þannig að þetta mun ekki hafa neikvæð áhrif á afkomu ríkissjóðs.“ Hún segir afkomu ríkissjóðs verða jákvæða. Ekki þurfi alltaf meiri peninga til að greiða fyrir samningum á vinnumarkaði. Stundum þurfi að breyta reglum um réttindi launafólks eða nýta fjárheimildir betur. Fyrri pakkar metnir á 80 milljarða Þegar ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur kynnti aðgerðir til stuðnings fjögurra ára kjarasamningum í mars 2024 var heildarumfang þeirra metið á allt að 80 milljarða króna á samningstímanum 2024–2028. Þar voru meðal annars hærri barnabætur, gjaldfrjálsar skólamáltíðir, auknar fæðingarorlofsgreiðslur og húsnæðisstuðningur. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkið ætla að greiða hlut sveitarfélaganna í uppbyggingu almennra íbúða. Hún telur það geta skilað nokkrum hundruðum viðbótaríbúða á leigumarkað á næsta ári.Vísir/Rafn Í fjármálaáætluninni sem lögð var fram vorið 2024 var kostnaður vegna aðgerðanna á því ári metinn um tólf milljarðar króna. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna Lífskjarasamningsins árið 2019 voru einnig kynntar sem um 80 milljarða stuðningur yfir samningstímann. Í fyrri pökkunum var kostnaður yfir nokkur ár talinn saman. Kristrún segir að ríkið hafi þegar tekið frá fé fyrir stórum hluta aðgerðanna nú og að 1,6 milljarða króna þurfi til viðbótar. Fimm mánaða vinna að baki Forseti ASÍ sagði á blaðamannafundi Kristrúnar í gær að vinnan hefði staðið frá því í maí. Spurð út í þennan langa undirbúning segir Kristrún heilmikið hafa gerst allan þann tíma. Það sem almenningur verði helst var við í aðdraganda niðurstöðu sé hins vegar sú pressa sem aðilar setji hver á annan. „Það er verið að setja pressu á stjórnvöld, það er verið að setja pressu á verkalýðshreyfinguna, á Samtök atvinnulífsins og fleira og það er það sem fólk verður vart við.“ Hún segir ASÍ, Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld hafa unnið vel saman. Undirbúningurinn hafi lagt grunninn að niðurstöðunni í gær. „Á lokametrunum voru það svona ákveðnar útfærslur sem gerðu útslagið eins og oft gerist þegar pressan kemur á.“ Ríkið greiði hlut sveitarfélaganna Ríkið ætlar meðal annars að greiða þann hluta stofnframlaga til uppbyggingar almennra íbúða sem annars hefði komið frá sveitarfélögunum. Kristrún segir ríkið grípa inn í til skamms tíma, að minnsta kosti út árið 2027, til að halda uppbyggingunni gangandi. Hún segir sveitarfélög af ýmsum ástæðum ekki hafa sinnt verkefninu. Sum hafi ekki áhuga á því og telji það ekki samræmast pólitískri stefnu sinni. Í öðrum tilvikum hafi sveitarfélög ekki viljað leggja lóðir til uppbyggingarinnar. „Ég ætla kannski ekki að dæma um það á þessum tímapunkti en við megum ekkert við því að missa þetta almenna íbúðakerfi niður.“ Að mati Kristrúnar getur breytingin skilað nokkur hundruð viðbótaríbúðum á leigumarkað á næsta ári og þannig þrýst leiguverði niður. Hún segir það pólitíska stefnu ríkisstjórnarinnar að halda almenna íbúðakerfinu gangandi og að kerfið skipti máli fyrir stöðugleika á leigumarkaði. „Við verðum að gera þetta“ Kristrún segir skerðingarmörk barnabóta einnig verða hækkuð til að tryggja að útgreiddar barnabætur haldist í 21 milljarði króna. Þá eigi heimilin að finna fyrir viljayfirlýsingum ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja um að halda hækkunum í hófi. Það geti haft áhrif á verðbólgu og vexti og þar með kostnað heimilanna. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði í viðtali við Vísi á miðvikudag að mjög erfitt væri að takmarka verð- og gjaldskrárhækkanir við 2,5 prósent þegar laun hækki um 3,5 prósent. Hann fagnaði þó viðleitninni til að halda aftur af hækkunum og taldi hana geta skilað lægri vaxtakostnaði. Spurð hvort raunhæft sé að standa við þessi fyrirheit þrátt fyrir aukinn launakostnað segir Kristrún: „Við verðum að gera þetta. Við erum bara komin á þann stað að við eigum ekki innistæðu fyrir því að vera að velta hækkunum að of miklu leyti út í verðlag.“ Hún telur það raunhæft ef allir standi saman og segir viljayfirlýsinguna fela í sér skuldbindingu aðilanna þriggja. Kristrún vonast jafnframt til að olíuverðshækkanir, sem hún segir hafa haft mikil áhrif á verðbólguna undanfarna mánuði, gangi til baka. Ró á ástandinu í Mið-Austurlöndum geti þannig haft veruleg áhrif á efnahag íslenskra heimila. Þar sé þó um ytri áhrif að ræða sem íslensk stjórnvöld ráði illa við. Vaxtabótaauki fari inn á höfuðstól Verði verðbólga yfir 3,8 prósentum undir lok árs 2027 segir Kristrún sérstakan vaxtabótaauka koma til greiðslu í byrjun árs 2028. Heimili með þyngstu greiðslurnar geti mögulega fengið hátt í hundrað þúsund króna eingreiðslu. Greiðslan fari inn á höfuðstól húsnæðislánsins. „Það skiptir líka máli, sú útfærsla, þannig að þetta fari ekki bara beint út í kerfið í þenslu heldur lækki þá skuldabyrði heimilanna og það hefur veruleg áhrif.“ Spurð um þróun vaxtabóta segir hún kerfið smám saman hafa verið að leggjast niður eftir að ákveðið hafi verið að leggja meiri áherslu á hlutdeildarlán og ráðstöfun séreignarsparnaðar. Nú sé um sérstaka, skilyrta eingreiðslu að ræða. Stoltust af því að samningarnir héldu Spurð hverju hún sé stoltust af eftir gærdaginn segir Kristrún niðurstöðuna á vinnumarkaði standa upp úr. „Ég er aðallega bara stolt af því að þessir samningar hafi haldið.“ Hún hrósar stéttarfélögunum sem sömdu fyrir ábyrgð í viðræðunum, ASÍ fyrir að halda utan um vinnuna og Samtökum atvinnulífsins fyrir viðleitni þeirra. Stjórnvöld hafi haft áhrif en það hafi fyrst og fremst verið aðilar vinnumarkaðarins sem komu saman og náðu niðurstöðu. Kristrún segir aðgerðirnar jafnframt falla að áherslum ríkisstjórnarinnar. Þar nefnir hún breytingar á reglum um févíti, styrkingu almenna íbúðakerfisins og að setja barnabætur í fastari skorður. Hún sé einnig stolt af því að tekist hafi að greiða fyrir samningunum án mikillar fjárhagslegrar aukabyrði á ríkissjóð.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Vinnumarkaður Sveitarstjórnarmál Fasteignamarkaður Fjölskyldumál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Sjá meira