Þórólfur Júlían Dagsson varð hlutskarpastur í prófkjöri Pírata í Reykjanesbæ sem lauk um hádegi í dag. Hrafnkell Brimar Hallmundsson lenti í öðru sæti og Margrét Sigrún Þórólfsdóttir í því þriðja. Þórólfur er talsmaður Samtaka andstæðinga stóriðju í Helguvík.
Þórólfur lenti í þriðja sæti í prófkjöri flokksins í Suðurkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í október í fyrra. Ákvað hann að taka ekki sæti á lista Pírata þá vegna þeirrar niðurstöðu en hann hafði sóst eftir því fysta.
Píratar eiga ekki sæti í bæjarstjórn Reykjanesbæjar en flokkurinn fékk 2,5 prósent atkvæða árið 2014. Alls voru greidd 170 atkvæði í prófkjörinu en fimm voru í framboði.
Niðurstaða prófkjörsins er eftirfarandi:
1. Þórólfur Júlían Dagsson
2. Hrafnkell Brimar Hallmundsson
3. Margrét Sigrún Þórólfsdóttir
4. Guðmundur Arnar Guðmundsson
5. Jón Páll Garðarsson
Innlent
Þórólfur Júlían leiðir lista Pírata í Reykjanesbæ
Tengdar fréttir
Þórólfur Júlían tekur ekki sæti á lista Pírata
Þórólfur Júlían Dagsson hyggst ekki taka sæti á lista Pírata í Suðurkjördæmi. Þórólfur lenti í þriðja sæti í prófkjöri flokksins í kjördæminu.
Vilja ógilda starfsleyfi kísilversins í Helguvík
Íbúar í Reykjanesbæ undirbúa nú málsókn á hendur United Silicon til að ógilda starfsleyfi kísilversins í Helguvík. Einn af forsvarsmönnum hópsins sem stendur á bak við málsóknina segir að opinberar eftirlitsstofnanir hafi brugðist í málinu.