Sam Nunberg, fyrrverandi ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, segir að hann muni ekki una stefnu til að bera vitni í rannsókn Roberts Mueller á afskiptum Rússa í forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016. Hann segir jafnframt að það geti verið að forsetinn hafi gert eitthvað ólöglegt í kosningabaráttunni.
Nunberg rædd við The Washington Post og MSNBC í dag. Sagðist hann heita því að gefa skít í Mueller sem hefur ákært 13 rússneska ríkisborgara og fjóra fyrrverandi aðstoðarmenn Trump, en þrír þeirra hafa samið um að veita upplýsingar.
Nunberg sagðist hins vegar ætla að tæta stefnuna í beinni útsendingu. Í samtali við Katy Tur á MSNBC sagðist hann gruna að Trump „gæti hafa gert eitthvað“ ólöglegt í kosningabaráttunni.
„En ég veit það ekki fyrir víst,“ bætti hann við.
Skorar á Mueller að handtaka sig
Nunberg var pólitískur ráðgjafi Trump en var rekinn í ágúst árið 2015 af þáverandi kosningastjóra Trump, Corey Lewandowski, vegna umdeildra Facebook færslna sem þóttu lýsa kynþáttahatri Nunberg.
Trump stefndi Nunberg rétt fyrir landsfund Repúblikana árið 2016 fyrir að leka upplýsingum um samband Lewandowski við einn nánasta ráðgjafa Trump og nú fyrrverandi samskiptastjóra Hvíta hússins, Hope Hicks.
Nunberg hefur hins vegar enn haldið góðum tengslum við marga í innsta hring Trump.
Í samtali við Washington Post skoraði hann á Mueller að grípa til aðgerða ef hann neiti að bera vitni á föstudag.
„Hann má handtaka mig,“ sagði hann.
„Ég held það væri fyndið ef þeir handtaka mig,“ sagði hann svo í samtali við MSNBC.
„Þetta eru nornaveiðar og ég ætla ekki að vera samvinnuþýður.“
„Af hverju þarf ég að eyða 80 klukkutímum í að fara yfir tölvupóstana mína? Samskipti sem ég átti við Steve Bannon og Roger Stone? Af hverju þarf Bob Mueller að sjá tölvupósta þar sem ég sendi Roger og Steve myndbönd og við tölum um hversu mikið við hötum fólk?“
Fyrrverandi ráðgjafi: Trump gæti hafa gert eitthvað ólöglegt
Tengdar fréttir
Mueller rannsakar hvort arabar hafi keypt pólitíska greiða hjá Trump
Til rannsóknar er hvort að fulltrúar Sameinuðu arabísku furstadæmanna hafi reynt að kaupa sér áhrif með því að veita fé í kosningasjóði Trump.
Fylgdarkona segist hafa sannanir um afskipti Rússa í Bandaríkjunum
Konan var handtekin á kynlífsnámskeiði í Taílandi og segist veita bandarískum yfirvöldum gögnin ef hún fær pólitískt hæli vestanhafs.