Dómari sem sparkaði í leikmann settur í hálfs árs bann | Myndband Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. febrúar 2018 09:00 Chapron er hér að henda Carlos af velli eftir að hafa sparkað í hann. Geggjuð uppákoma. vísir/getty
Franski dómarinn Tony Chapron mun ekki dæma fótbolta næsta hálfa árið en hann hefur skrifað nafn sitt í sögubækurnar fyrir að komast í bann fyrir að sparka í leikmann. Í leik Nantes og PSG í síðasta mánuði var óvart stigið á hæla dómarans með þeim afleiðingum að hann datt. Chapron brást hinn versti við og sparkaði í leikmanninn sem hafði rekist í hann, Diego Carlos. Hann lét ekki þar við sitja heldur gaf honum sitt annað gula spjald í leiknum og sendi hann í bað. Chapron var strax sendur í leyfi eftir leikinn og aganefnd franska knattspyrnusambandsins hefur nú ákveðið að réttast sé að vera með hann í banni næsta hálfa árið. Seinna spjaldið á Carlos hefur verið dregið til baka að ósk Chapron. Leikmaðurinn sleppur því við bann. Chapron er 45 ára gamall og hefur dæmt í frönsku úrvalsdeildinni síðan 2004. Hann hefur dæmt yfir 400 leiki í deildinni. Þetta tímabil átti að vera hans síðasta í boltanum og þar sem hann fær ekki að dæma meira í vetur er ferli hans lokið á skrautlegan hátt.Affaire Tony Chapron : grâce à cette palette, on découvre que Diego Carlos avait fait le jeu du rond à l'arbitre https://t.co/MwW4yfGbE0#Canalbis@JordietMartinpic.twitter.com/3mKSkCihOT — CANAL+ (@canalplus) January 17, 2018
Fótbolti Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Fleiri fréttir KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sjá meira