Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Sindri Sverrisson skrifar 1. október 2026 10:35 Atanas Ribarski stýrði sinni fyrstu æfingu með A-landsliðinu í gær. @TeamBulgaria Búlgaría hefur ráðið nýjan þjálfara tímabundið eftir að Aleksandar Dimitrov tilkynnti á blaðamannafundi í fyrrakvöld, eftir 0-0 jafntefli við Eistland, að hann væri hættur störfum. Sá mætir heldur reynslulítill til Íslands.
Undir stjórn Dimitrov hóf Búlgaría Þjóðadeildina á að tapa 2-1 gegn Lúxemborg og gera markalaust jafntefli við Eistland þrátt fyrir að báðir leikir væru á heimavelli liðsins. Þar með hafði Dimitrov stýrt Búlgaríu í tíu leikjum og tapað fimm þeirra, gert tvö jafntefli og unnið þrjá. Dimitrov sagði ljóst að hann hefði misst traust leikmanna og þakkaði pent fyrir sig. Í hans stað hefur Atanas Ribarski verið ráðinn tímabundið og ljóst að hann stýrir Búlgaríu að minnsta kosti gegn Íslandi á Laugardalsvelli á laugardaginn og svo gegn Lúxemborg næsta þriðjudag. Ber að ofan í tónlistarmyndbandi Ribarski er 41 árs gamall en frekar reynslulítill á stóra sviðinu. Hann hefur aðallega þjálfað yngri leikmenn og var fyrir ári síðan ráðinn þjálfari U19-landsliðs Búlgaríu. Búlgarski miðillinn Gong.bg bendir á að raunar hafi Ribarski aðeins fyrir viku síðan hlotið UEFA Pro-þjálfaragráðuna sem er hæsta gráða sem þjálfarar geta fengið. Þá bendir miðillinn á að Ribarski hafi áður reynt fyrir sér á öðru sviði þegar hann lék í tónlistarmyndbandi söngkonunnar Preslava árið 2012, ber að ofan í ögrandi senum. Ribarski hefur áður starfað fyrir A-landsliðið en þá sem greinandi þegar Ilian Iliev var þjálfari.
Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira