Sigurvegari Eurovision 2013 kemur fram á lokakvöldinu Stefán Árni Pálsson skrifar 30. janúar 2018 11:15 Emmelie de Forest þegar hún vann árið 2013. Vísir/getty
Danska söngkonan Emmelie de Forest sem sigraði Eurovision söngvakeppnina árið 2013 með laginu Only Teardrops mun koma fram á úrslitum Söngvakeppninnar í Laugardalshöll 3. mars. Lagið Only Teardrops vann hug og hjörtu Evrópubúa þegar keppnin var haldin í Malmö í Svíþjóð en lagið sigraði með 281 stigi, 47 stigum fyrir ofan lagið í 2. sæti. Íslendingar voru afar hrifnir af laginu og gáfu því 12 stig í keppninni. Emmelie verður 25 ára þann 28. febrúar. Hún ólst upp í Danmörku og Svíþjóð en móðir hennar er dönsk og faðirinn sænskur. Emmelie mun sem fyrr segir koma fram á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar en hún mun einnig syngja á aðalæfingunni, fjölskyldurennslinu, fyrr um daginn. Nú þegar hefur verið tilkynnt að sænski söngvarinn Robin Bengtsston muni koma fram í Söngvakeppninni í ár. Robin flutti sænska lagið I can’t go on í Eurovision söngvakeppninni í fyrra. Svala Björgvinsdóttir, sigurvegari Söngvakeppninnar í fyrra mun einnig stíga á svið og von er á leynigesti eins og kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum Söngvakeppninnar.Miðasala á Söngvakeppnina hefst kl. 12 á hádegi í dag, þriðjudag, á tix.is.Um er að ræða 4 viðburði:10. febrúar í Háskólabíói kl. 19.30 – Fyrri lögin 6 sem keppa í undanúrslitunum.17. febrúar í Háskólabíói kl. 19.30 – Seinni lögin 6 sem keppa í undanúrslitunum.3. mars í Laugardalshöll kl. 14.30 – Lögin sem keppa til úrslita. Aðalæfing, Fjölskyldurennsli.3. mars í Laugardalshöll kl. 19.30 – Úrslitin í Söngvakeppninni 2018.
Eurovision Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Patrick Stewart látinn Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira