Vísindamenn argir vegna þess sem þeir telja „geimveggjakrot“ Kjartan Kjartansson skrifar 27. janúar 2018 11:53 Peter Beck, stofnandi Rocket Lab með Mannkynsstjörnuna. Gervihnötturinn er með 65 hliðar til að hann skíni sem skærast. Rocket Lab
Gervihnöttur sem er sérstaklega hannaður til að endurvarpa miklu sólarljósi og skína skært á himninum sætir harðri gagnrýni áhugastjörnufræðinga og vísindamanna. Hnötturinn á að vera listaverk en hann gæti skemmt fyrir rannsóknum á jörðu niðri. „Skemmdarverk“, „diskókúla“, „geimveggjakrot“ og „geimrusl“ eru dæmi um lýsingar vísindamanna og áhugamanna um Mannkynsstjörnuna, gervihnött nýsjálenska einkarekna geimferðafyrirtækisins Rocket Lab. Mannkynsstjörnunni var skotið á loft fyrr í þessum mánuði og komið fyrir á braut um jörðu. Þar á gervitunglið að vera í níu mánuði. Það er hannað til skína svo skært að það sé sýnilegt með berum augum á jörðu niðri. Yfirlýst markmið með hnettinum er að vekja jarðarbúa til umhugsunar um hvernig þeir tengjast allir á reikistjörnunni sem þeir deila. Vísindamennirnir sjá hins vegar aðeins ljósmengun sem spillir fyrir rannsóknum.Washington Post segir að ef Mannkynsstjarnan flýgur í gegnum sjónsvið sjónauka á jörðu niðri eyðileggi það athuganir þeirra. Fyrirtækið svaraði ekki fyrirspurn blaðsins en í svari á Twitter við gagnrýni sagði það gervihnöttinn aðeins lifa í skamma stund. Aftur á móti boðaði það einnig fleiri útgáfur af Mannkynsstjörnunni í framtíðinni.For no reason at all, here's what it looks like when a satellite goes through Hubble's field of view whilst you are trying to image something in the distant solar system. pic.twitter.com/eLWR1ncdqx— Alex Parker (@Alex_Parker) January 25, 2018
Tækni Vísindi Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Fleiri fréttir Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Sjá meira