Þriðja banaslysið á sex árum í Eldhrauni Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. desember 2017 06:00 Rútan ók út af og valt eftir að hafa lent á fólksbíl. Þrír þeirra sem fluttir voru á Landspítalann eru enn á gjörgæsludeild, minnst einn þeirra í lífshættu. Sjö eru á bráðalegudeild og tveir hafa verið útskrifaðir af spítalanum. Lögð er áhersla á að reglur um notkun bílbelta verði gerðar skýrari. vísir/vilhelm
Að minnsta kosti tvö banaslys hafa orðið síðustu fimm árin í Eldhrauni, nærri Kirkjubæjarklaustri, þar sem rútuslysið varð í fyrradag. Í báðum tilfellum létust ferðamenn. Hinn 23. apríl 2012 missti ökumaður bílaleigubíls bifreiðina út á vegöxlina þegar hann teygði sig eftir snakki frá farþega í framsæti. Við það missti hann stjórn á bifreiðinni sem fór út af veginum og valt. Farþegi í aftursæti bifreiðarinnar, 25 ára gamall karlmaður, var ekki spenntur í öryggisbelti. Hann kastaðist út úr bílnum og lést. Að morgni 27. mars 2015 missti ökumaður stjórn á bílaleigubíl í krapa skammt vestan við Kirkjubæjarklaustur og fór út af vinstra megin. Í slysinu lést tvítug kona, sem var farþegi í framsæti. Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa vegna slyssins kemur fram að vegna aukins fjölda ferðamanna megi vegakerfið þola aukið álag allt árið um kring. Fjárveitingar til vegagerðar, vetrarþjónustu og viðhalds vegakerfisins almennt hafi ekki aukist samhliða fjölgun ferðamanna. Stjórnvöld þurfi að bæta úr í þessum efnum og veita meira fé til viðhalds vegakerfisins, bættra merkinga og nýframkvæmda. Það er kannski til marks um aukið álag á vegakerfið að útgáfa hópferðaleyfa hefur næstum tvöfaldast frá árinu 2013. Það ár voru 348 leyfi gefin út, en í ár eru þau orðin 634. Nýskráningum hópbíla hefur líka fjölgað. Ágúst Mogensen, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS og fyrrverandi rannsóknarstjóri rannsóknarnefndar samgönguslysa, segir að það verði að bæta veginn um Eldhraun og auka þjónustu. Þá verði líka að skýra betur reglur um bílbeltanotkun í hópbifreiðum og strætisvögnum. „Við erum ekki að sjá neitt nýtt þarna. Það hafa því miður orðið mörg slys þar sem sömu þættir eru líklegast að koma fyrir og í þessu slysi,“ segir Ágúst. Það sé krafa fólks að reglur um bílbeltanotkun verði skýrari. „Við fáum mörg símtöl um þetta frá foreldrum,“ segir Ágúst, sem tekur þó fram að hann byggi þessar fullyrðingar á upplýsingum úr fjölmiðlum, en sé ekki að orsakagreina umrætt slys. Viðbragðsaðilar sem komu á vettvang rútuslyssins í fyrradag hafa sagt að það hefði breytt miklu ef allir farþegar hefðu notað bílbelti. Í núgildandi reglugerð um öryggis- og verndarbúnað í ökutækjum er undanþáguákvæði þar sem segir að ekki sé skylt að nota öryggisbelti í strætó. Í drögum að breytingum á reglugerðinni, sem enn hafa ekki verið samþykkt, er hnykkt á því að akstur í dreifbýli, þar sem margir kílómetrar eru á milli stoppistöðva og hámarkshraði sá hæsti sem leyfður er á Íslandi, geti ekki fallið undir undanþáguákvæði reglugerðarinnar.Auðbjörg B. Bjarnadóttir, hjúkrunarstjóri hjá Heilsugæslunni á Kirkjubæjarklaustri.Vinnan gekk samkvæmt björtustu vonum „Þetta var auðvitað kaótískt til að byrja með eins og eðlilegt er. En stjórnin gekk vel og ég myndi segja að vinnan á vettvangi hafi gengið samkvæmt björtustu vonum eftir að viðbragðsaðilar voru komnir,“ segir Auðbjörg B. Bjarnadóttir, hjúkrunarstjóri hjá Heilsugæslunni á Kirkjubæjarklaustri. Hún var fyrst á vettvang slyssins eftir að kallað var á aðstoð. Auðbjörg segir að fyrsta verkefni hennar hafi verið að draga upp mynd af vettvangi og bráðaflokka hina slösuðu til að tryggja að allar bjargir væru til staðar sem fyrst. Þegar búið var að bráðaflokka var sent allsherjarútkall. „Fæst orð hafa nú minnsta ábyrgð,“ segir Auðbjörg spurð um það hvernig við séum búin undir slys af þessu tagi. „En ég held að alls staðar á litlum stöðum á landinu sé viðbragð takmarkað. Þó að við hefðum verið einn eða tveir til viðbótar þá er svona slys af þessari stærðargráðu alltaf katastrófa.“ Við svona slys séu allar bjargir komnar að þolmörkum og ekkert annað hefði mátt út af bera á Suðurlandi. Auðbjörg segir að líðan hennar sjálfrar eftir atburðina sé eins og við megi búast. „Hópurinn vann sem einn og það var ómetanleg aðstoð frá vegfarendum til að byrja með.“
Ferðamennska á Íslandi Birtist í Fréttablaðinu Rútuslys við Kirkjubæjarklaustur Tengdar fréttir Slysið hefði getað orðið hvar sem er á landinu Fyrrverandi samgönguráðherra segir að rútuslysið á Suðurlandsvegi í gær hefði getað orðið hvar sem er á landinu. Ekki sé hægt að taka þennan tiltekna vegarkafla út fyrir sviga þegar talað er um umbætur í vegakerfinu. 28. desember 2017 12:15 Berjast fyrir lífi sínu eftir rútuslysið Einn lést og fjöldi er sár eftir að rúta endaði utan vegar skammt frá Kirkjubæjarklaustri. 28. desember 2017 11:15 Mest lesið Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Erlent Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Sjá meira
Slysið hefði getað orðið hvar sem er á landinu Fyrrverandi samgönguráðherra segir að rútuslysið á Suðurlandsvegi í gær hefði getað orðið hvar sem er á landinu. Ekki sé hægt að taka þennan tiltekna vegarkafla út fyrir sviga þegar talað er um umbætur í vegakerfinu. 28. desember 2017 12:15
Berjast fyrir lífi sínu eftir rútuslysið Einn lést og fjöldi er sár eftir að rúta endaði utan vegar skammt frá Kirkjubæjarklaustri. 28. desember 2017 11:15