Wintris á meðal hluthafa í Kaupþingi Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 12. október 2017 23:55 Heildarfjöldi hluthafa í Kaupþingi var 591 samkvæmt síðasta ársreikningi. VÍSIR/STEFÁN
Vogunarsjóðir eiga mest í Kaupþingi en heildarfjöldi hluthafa var 591 samkvæmt síðasta ársreikningi. Flestir þeirra sem eiga hlut í félaginu eru þeir sem lýstu kröfu í bú Kaupþings. Wintris á þar smáan hlut eða 0,01 prósent. Samkvæmt frétt Kjarnans voru heildareignir Kaupþings 409,7 milljarðar og heildarskuldir 396,3 milljarðar á síðasta ári. Stærsta eign Kaupþings er 57 prósenta eignarhlutur Kaupskil, félags í eigu Kaupþings, í Arion Banka. Vogunar- og fjárfestingarsjóðir eiga 30 prósent eignarhlut og ríkið 13 prósent. Eins og Markaðurinn sagði frá í síðasta mánuði voru áform um fyrirhugað útboð og skráningu Arion banka frestað. Þetta var gert vegna stjórnarslita og boðaðra kosninga til Alþingis þann 28. október næstkomandi. Samkvæmt heimildum Markaðarins stefnir Kaupþing, sem eins og áður sagði á rúmlega 57 prósenta hlut í bankanum, nú að því að losa um hlut sinn í bankanum í gegnum opið hlutafjárútboð á fyrsta fjórðungi næsta árs. Samkvæmt frétt Kjarnans á Wintris 0,01 prósent hlut í Kaupþingi. Wintris er í eigu Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Sigmundur Davíð er formaður Miðflokksins en í ræðu á formlegum stefnufundi flokksins um liðna helgi boðaði hann róttækar breytingar á fjármálakerfinu. Sagði hann að liður í þeirri áætlun væri að nýta forkaupsrétt ríkisins að Arion banka og eins og hann orðaði það að „stöðva þá vitleysu sem var komin af stað þar sem vogunarsjóðir voru langt komnir með það að selja sjálfum sér bankann á of lágu verði og hvers vegna varðaði það okkur stjórnvöld? Jú, annars vegar vegna þess að bankinn er kerfislega mikilvægur banki á Íslandi og hins vegar vegna þess að megnið af því sem átti að koma fyrir bankann átti að renna til ríkisins, í sameiginlega sjóði, svoleiðis að þar þykir mér blasa við að við munum nýta forkaupsréttinn og vinna úr stöðu þess banka eins og fjármálakerfisins að öðru leyti í framhaldinu.“
Tengdar fréttir Skráning Arion banka frestast fram á næsta ár vegna pólitískrar óvissu Útboð og skráning á Arion banka verður í fyrsta lagi í byrjun næsta árs. Ekkert samkomulag um endurskoðun á forkaupsrétti ríkisins. Þingmaður Framsóknarflokksins segir starfsstjórn ekki geta tekið neina slíka ákvörðun. 20. september 2017 06:30 Vill að ríkið nýti forkaupsrétt að Arion-banka Sigmundur Davíð boðar róttækar breytingar á fjármálakerfinu. 8. október 2017 19:22 Mest lesið Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Halda til loðnuveiða í kvöld Viðskipti innlent Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Siggi til Varist Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Fleiri fréttir Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Sjá meira
Skráning Arion banka frestast fram á næsta ár vegna pólitískrar óvissu Útboð og skráning á Arion banka verður í fyrsta lagi í byrjun næsta árs. Ekkert samkomulag um endurskoðun á forkaupsrétti ríkisins. Þingmaður Framsóknarflokksins segir starfsstjórn ekki geta tekið neina slíka ákvörðun. 20. september 2017 06:30
Vill að ríkið nýti forkaupsrétt að Arion-banka Sigmundur Davíð boðar róttækar breytingar á fjármálakerfinu. 8. október 2017 19:22