Bergljót Arnalds notar hljóðið í norðurljósunum fyrir sína fyrstu sólóplötu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 17. október 2017 14:15 Leik- og söngkonan Bergljót Arnalds gefur út plötuna Heart Beat um helgina.
Leik- og söngkonan Bergljót Arnalds gefur út sína fyrstu sólóplötu um helgina sem ber nafnið Heart Beat. Platan hefur verið 14 ár í vinnslu og hefur hún lagt allt sitt í þetta persónulega verkefni. Bergljót ætlar að vera með sérstaka útgáfutónleika í Listasafni Einars Jónssonar laugardaginn 21. október næstkomandi frá 15 til 17 og verður frítt inn á safnið á meðan tónleikunum stendur. Jöklahljóð og hjartsláttur„Þetta verður einstök uppákoma því við ætlum að nota alla salina í húsinu og fylla hvern sal fyrir sig af náttúruhljóðum. Blái salurinn verður til dæmis þannig að það er eins og þú sért uppi á jökli, í græna salnum færðu að heyra upptökur af norðurljósum og í rýminu þar sem ástarstytta Einars Jónssonar er má heyra hjartslátt.“Tónleikar Bergljótar verða svo í salnum sem er fyrir miðju og mun hún flytja tónlistina af disknum. „Tónlistin mín er tengd saman og það er mikið af náttúruhljóðum í henni, sérstaklega jöklahljóð og hjartsláttur.“ Baldur Jóhann Baldursson hljóðmeistari hefur unnið með Bergljótu að upptökum á náttúruhljóðunum og mun hann líka hjálpa henni að setja upp á listasafninu og breyta því í svokallaðan hljóðheim. Tók hann upp hljóðið í norðurljósunum með tæki sem tekur upp radíóbylgjur. Hún tók upp hjartsláttarhljóð í Malmö, skordýrahljóð í frumskógi á Kúbu og svo hefur hún tekið upp á jökli, í París og svona mætti lengi telja.Skilin á milli laga stundum óljós„Ég er búin að vinna þennan disk í 14 ár svo ég er búin að vinna með mjög mörgum við að gera hann, margir listamenn koma að gerð hans. Eitt lagið var til dæmis tekið upp í París fyrir 14 árum síðan. Þetta er allt frá því að vera sinfónískt yfir í að vera popp.“ Fyrsta lag plötunnar samdi Bergljót útfrá hljóðinu af hjartslætti. „Diskurinn hefst á hjartslætti og svo hefst lag út frá honum og diskurinn endar síðan á hjartslætti. Hann er allur tengdur saman með náttúruhljóðum eða hjartslætti svo stundum veit maður ekki hvenær eitt lag endar og annað byrjar.“ Bergljót segir að það hafi alltaf heillað sig að það sé taktur í öllu. „Hvernig sjórinn fellur að með flóði og fjöru, hvernig jörðin snýst og hjartslátturinn. Hvernig allt er með „rythma" og mynstr. Mörg hljóð eru líka svo lík og tengjast. Hljóðið hvernig ískristallar losna af jökli í sólinni er svipað og þegar hraun storknar í eldgosi.“
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira