Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Níels Thibaud Girerd skrifar 5. september 2026 14:03 Kolbeinn Tumi Daðason las síðasta sjónvarpsfréttatímann á Sýn, áður Stöð 2. Níels Thibaud Girerd Þetta var síðasta kvöld tæplega fjörutíu ára starfsemi sjónvarpsfrétta Sýnar. Frá því að Stöð 2 hóf útsendingar árið 1986 hefur kvöldfréttatíminn verið ein af lykilgáttum okkar inn í íslenskt samfélag — og um leið spegill þess.
Það er kannski engin tilviljun að Stöð 2 og fréttastofan urðu til einmitt árið 1986. Þetta var ár mikilla breytinga, hér heima sem erlendis. Kalda stríðið var komið á lokaskeið sitt og nýr kafli að hefjast í íslenskri fjölmiðlasögu. Árið hófst þegar geimferjan Challenger fórst 73 sekúndum eftir flugtak þann 28. janúar. Kjarnorkuslysið í Tsjernóbýl skók Evrópu og heimsbyggðina alla 26. apríl. Íslendingar stigu í fyrsta sinn á svið Eurovision í Bergen, 200 ára kaupstaðarafmæli Reykjavíkur var fagnað og Bylgjan, fyrsta einkarekna útvarpsstöð landsins, hóf útsendingar. Hallgrímskirkja var vígð og á heimsmeistaramótinu í Mexíkó skoraði Diego Maradona með „hendi Guðs“ eitt frægasta mark knattspyrnusögunnar gegn Englandi. Stöð 2 og fréttastofa hennar hófu síðan útsendingar 9. október, aðeins tveimur dögum áður en augu heimsins beindust að Reykjavík. Austrið og Vestrið mættust þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, hittust í Höfða 11. október. Síðan þá, í þessi tæpu fjörutíu ár, hefur fréttastofa Stöðvar 2 skráð samtíma- og þroskasögu okkar og fylgt samfélaginu og heiminum í gegnum breytingar og tímamót. Á fréttastofunni birtist tíðarandinn, fólkið, átökin, gleðin, sorgin og hversdagurinn; en fyrst og fremst augnablikin sem urðu að fréttum. Fréttir eru þegar öllu er á botninn hvolft heimild um okkur sjálf. Á þessari filmu speglast fólkið, átökin, gleðin, sorgin og hversdagurinn í síðustu útsendingu fréttanna mánudagskvöldið 31. ágúst 2026. Þetta er augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt. 30 mínútur í útsendingu. Mánudagurinn 31. ágúst 2026.Níels Thibaud Girerd 25 mínútur í útsendingu. Um tíu starfsmönnum fréttastofunnar hafði verið sagt upp þann daginn og tilfinningarnar miklar.Níels Thibaud Girerd 20 mínútur í útsendingu. Myndstjórn búin að koma sér fyrir.Níels Thibaud Girerd 19 mínútur í útsendingu. Verið að klippa síðustu fréttirnar.Níels Thibaud Girerd 17 mínútur í útsendingu. Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofu Sýnar les sjálfur síðasta kvöldfréttatímann.Níels Thibaud Girerd 15 mínútur í útsendingu. Gestur frá RÚV. Fréttir gera fréttir um fréttir.Níels Thibaud Girerd 14 mínútur í útsendingu. Tími til að klæða sig í jakkann.Níels Thibaud Girerd 14 mínútur í útsendingu. Kvikmyndatökumaður af RÚV safnar myndefni af sögulegu augnabliki.Níels Thibaud Girerd 13 mínútur í útsendingu. Atli Ísleifsson fréttastjóri.Níels Thibaud Girerd 11 mínútur í útsendingu. Míkrafónn tengdur og svonefndu eyra komið fyrir á réttum stað, í eyranu.Níels Thibaud Girerd 11 mínútur í útsendingu. Kristján Már Unnarsson, nýkominn frá Austfjörðum, undirbýr innkomu sína í fréttatímann.Níels Thibaud Girerd 8 mínútur í útsendingu. Telma Tómasson og Kolbeinn Tumi á heimavelli, í fréttasettinu.Níels Thibaud Girerd 5 mínútur í útsendingu. Herdís forstjóri Sýnar og Kristjana framkvæmdastjóri miðla mættar til að fylgjast með.Níels Thibaud Girerd 2 mínútur í útsendingu. Smá aukapúður á lokametrunum.Níels Thibaud Girerd 1 mínúta í útsendingu. Vatnsglasi komið fyrir.Níels Thibaud Girerd 30 sekúndur í útsendingu. Byrjað að telja niður.Níels Thibaud Girerd 5-4-3-2-1. 18.30. Níels Thibaud Girerd Go. „Gott kvöld.“Níels Thibaud Girerd RÚV undirbýr beina útsendingu í sínum fréttatíma. Sigríður Dögg formaður Blaðamannafélagsins mætt á svæðið.Níels Thibaud Girerd 18:40. Stutt í tárin. Telma Tómasson horfir á „Augnablik úr sögu kvöldfrétta.“ Rifjað var upp að fréttum Stöðvar 2 hefði í upphafi verið lýst sem ferskum andblæ og að í fyrsta sinn í íslenskri sjónvarpssögu hefðu verið sagðar fréttir á fimmtudögum. Filmuáhaldarinn ályktar að sumir muni það eins og það hafi gerst í gær.Níels Thibaud Girerd 18:45. Örvar Hafþórsson framleiðandi stýrir fréttatímanum. Oddur Ævar í beinni útsendingu vegna bensínhækkunar.Níels Thibaud Girerd Atli Ísleifsson fréttastjóri fylgist grannt með gangi mála.Níels Thibaud Girerd 18:54. „Þetta voru fréttirnar...“Níels Thibaud Girerd 18:56. Ljósin slokkna.Níels Thibaud Girerd Þulafaðmlag.Níels Thibaud Girerd „Við segjum ekki bless, við segjum takk.“Níels Thibaud Girerd
Tímamót Kvöldfréttir Fjölmiðlar Sýn Mest lesið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið „Það voru margir með tár á hvarmi“ Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni Lífið Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Lífið „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Sjá meira