Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 7. september 2026 07:02 Það er alltaf nóg um að vera hjá stjörnum landsins. Instagram Það var líf og fjör í liðinni viku hjá stjörnum landsins og september tekur á móti landsmönnum með sól og fögrum haustdögum. Raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime sýndi á sér nýjar og óvæntar hliðar, Birgitta Líf fór í Reykjaböðin, Ásgerður Diljá fagnaði afmæli í París og Dorrit hékk á hvolfi og sagði að það væri besti þynnkubaninn.
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Mætt í brúðkaup aldarinnar Hjúkrunarfræðingurinn og skvísan Þrúður Guðmundsdóttir lét sig ekki vanta í það sem hún kallar brúðkaup aldarinnar en vinkona hennar Anna Fríða Gísladóttir framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Nóa Siríus giftist ástinni sinni Sverri Fali Björnssyni við glæsilega athöfn og veislu á Ítalíu. View this post on Instagram A post shared by Þrúður 🦋 (@tobbakuti) Íslenskur karlmaður sem vill veiða lax Raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime er vanur því að deila ofurskvísumyndum af sér á Instagram en skellti sér í veiði í síðustu viku og virtist njóta þess vel að rokka vöðlurnar. Hann segir að undir suður-ameríska blóðinu, bótoxinu og hárlengingunum leynist íslenskur karlmaður sem vill bara veiða lax. View this post on Instagram A post shared by Patrekur Jaime 👑 (@patrekurjaime) Besta leiðin til að jafna sig á þynnku Dorrit Moussaieff fyrrum forsetafrú, athafnakona og lífskúnstner hékk á hvolfi á Instagram og sagði að þetta væri besta leiðin til að jafna sig á þynnku. Dorrit er dugleg að deila alls konar skemmtilegu með fylgjendum sínum á Instagram.Instagram Allra besti afmælis-nablinn Guðrún Svava Egilsdóttir áhrifavaldur og sjónvarpsstjarna óskaði besta vini sínum Andra Má Eggertssyni, betur þekktur sem Nablinn, til hamingju með afmælið. Þau hafa verið öflugt tvíeyki á ýmsum viðburðum og skemmtunum. View this post on Instagram A post shared by Gugga í Gúmmíbát (@guggaigummibat) Nablinn varð 28 ára 1. september. Hann hefur meðal annars vakið mikla athygli í íþróttafréttum og íslensku samkvæmislífi en hann ræddi við Vísi á einlægum nótum í vor. Fyrirsæta í New York Fyrirsætan Ava Hilmarsdóttir gerir það gott í fyrirsætubransanum í New York og birti myndasyrpu af sér á götum borgarinnar. View this post on Instagram A post shared by Ava Hilmarsdóttir (@avahilmars) Fegurðardrottning á fjöllum Sigríður Ósk Hrafnkellsdóttir Ungfrú Ísland 2026 er mætt til Bandaríkjanna og var agndofa yfir fegurð Smokey Mountains í Tennesee. View this post on Instagram A post shared by 🎀 SIGGA ÓZK 🎀 (@siggaozk) Heima er best Listræni stjórnandinn Júnía Lín elskar að njóta lífsins heima á Íslandi en hún hefur fylgt tvíburasystur sinni Laufeyju um allan heim á tónleikaferðalagi og sér þar um listræna stjórnun á tónleikunum. Júnía rokkaði mjög skemmtilegt loðvesti sem hún fékk hjá íslenska hönnunarhúsinu Sunneva Design. View this post on Instagram A post shared by Junia (@junialin) Og Laufey Lín kom líka til Íslands og átti hér góðar stundir. Hún gisti meðal annars á lúxushótelinu Deplum farm með fjölskyldu sinni og birti skemmtilegar myndir frá dvölinni þar. View this post on Instagram A post shared by laufey (@laufey) Sjóðheitur í LA New York gæinn Björn Boði Björnsson skellti sér á dögunum til Los Angeles með systur sinni Birgittu Líf. View this post on Instagram A post shared by Björn Boði (@bjornbodi) Gat í naflann Vinkonurnar Kristín Pétursdóttir og Birgitta Líf Björnsdóttir fengu sér gat í naflann hjá Emma Body Art á Laugavegi. LXS skvísurnar skelltu sér allar þangað til að fá einhver göt og sumar enduðu með fleiri en aðrar. Ofurskvísurnar Kristín og Birgitta fengu sér gat í naflann.Instagram Og Birgitta Líf átti viðburðaríka viku en hún skellti sér í Reykjaböðin í Hveragerði sem voru að opna núna í byrjun september. View this post on Instagram A post shared by Birgitta Líf Björnsdóttir (@birgittalif) Mikið fjör hjá Brynhildi Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstýran Brynhildur Gunnlaugsdóttir elskar að hafa gaman. View this post on Instagram A post shared by BRYNNY (@brynhildurgunnlaugs) Afmæli í París Ásgerður Diljá markaðsstýra Aurum skartgripaverslunar fór til Parísar yfir afmæli sitt með sínum heittelskaða Sólon Welding. View this post on Instagram A post shared by Ásgerður Diljá (@asgerdurdilja) Afmælisdrottning í hvítu á Spáni Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir fagnaði afmæli sínu í sólinni á Spáni og afmæliskjóllinn var hinn glæsilegasti. View this post on Instagram A post shared by AndreA Magnúsdóttir (@andreamagnus) Alaska og Takk takk Tónlistarstjarnan Alaska gerði bikiní með strákunum í Takk takk. View this post on Instagram A post shared by Takk takk (@takktakk.is) Skvísuferð Viðskiptafræðingurinn Embla Hallfríðardóttir er í skvísuvinkonuhóp sem kallar sig Gúrkurnar og þær eru duglegar að ferðast og gera skemmtilega hluti. Nú eru þær staddar á Spáni og kunna sannarlega að njóta. View this post on Instagram A post shared by EMBLA HALLFRÍÐAR (@emblahallfridar) Eina maraþonið sem Móa tekur þátt í Tískuunnandinn og áhrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir skellti sér í rauðvínsmaraþon í Bordeaux í Frakklandi og segir það eina maraþonið sem hún tekur þátt í. View this post on Instagram A post shared by Móeiður Lárusdóttir (@moeidur) Fagnaði ástinni Hlaðvarpsstýran, áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir fagnaði brúðkaupi mágkonu sinnar Margrétar Bjarnadóttur og Ísaks Ernis á Ion hótelinu. View this post on Instagram A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir 🦋 (@sunnevaeinarss)
Stjörnulífið Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Sjá meira