Veiði

Rigningar næstu daga kæta laxveiðimenn

Karl Lúðvíksson skrifar
Það hefur verið sólríkt síðustu tvær vikur en nú er rigning á leiðinni.
Það hefur verið sólríkt síðustu tvær vikur en nú er rigning á leiðinni. Mynd: KL
Það sem flestir veiðimenn sem veiða í ágúst vilja heyra er veðurspá með hressilegum rigningum og eiga svo næstu daga þar á eftir.

Þetta á sérstaklega við um árnar á vesturlandi og norðvesturlandi en árnar í dölunum eru líka orðnar nokkuð soltnar eftir góðum rigningum.  Samkvæmt veðurspám eru þær á leiðinni og það gæti hresst allverulega við tökugleðinni hjá laxinum í þessum ám.  Það sama á við um árnar í Borgarfirði en í þeim flestum hafa verið fínar gögnur í sumar svo laxleysi er ekki málið en það vantar, eins og oft á þessum árstíma, góðar rigningar til að koma tökunni almennilega í gang aftur.

Það sem gerist í ánum í kjölfar rigningar er að vatnið hækkar oft hressilega á meðan á mestu rigningnum stendur og því miður fara sumar af ánum í flóð í stuttann tíma.  Þegar vatnið sjatnar og nær jafnvægi er eins og laxinn fái aukna orku og takan verður oft eins og þegar hún er best á göngutima.  Veiðitölur úr ánum taka þess vegna oft mikinn kipp og það má alveg reikna með að veiðin í Þverá/Kjarrá, Langá, Norðurá, Grímsá, Laxá í Kjós, Laxá í Dölum, Haukadalsá, Hrútafjarðará og Víðidalsá bara svo nokkrar árnar séu nefndar gætu tekið mikið stökk á milli vikna.  Auðvitað eru fleiri ár þar sem þessar rigningargusur eiga eftir að hafa áhrif og við bíðum spennt eftir fréttum af veiðum í kringum þessa daga og vonum að þeir sem eiga veiðidaga á næstunni lendi í veiðiveislu við bakkann.






×