Nýr danskur framherji á að hjálpa Keflvíkingum að komst aftur upp í Pepsi-deildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2017 18:28 Lasse Rise í leik með Lyngby. Vísir/Getty
Keflvíkingar hafa styrkt sig fyrir komandi átök í Inkasso deildinni í fótbolta en þeir segja frá nýjum liðsmanni inn á heimasíðu sinni. Lasse Rise hefur nefnilega samið við Keflavík um að spila með liðinu út tímabilið. Rise er framherji og verður því við hlið landa síns Jeppe Hansen á lokakafla mótsins. Hans aðalstaða er að vera fremsti maður en hann getur þó einnig spilað á báðum vængjum. Lasse Rise er 31 árs og var í unglingaliði Bröndby áður en hann fór yfir til BK Avarta. Hann hefur síðan spilað með félögum eins og Lyngby BK, Randers FC og Esbjerg FB. „Keflavík fagnar komu hans og er honum ætlað það hlutverk að styrkja liðið í þeirri baráttu sem framundan er í því að komast upp í Pepsideild,“ segir í fréttatilkynningu inn á heimasíðu Keflvíkinga. Lasse Rise á að baki 92 leiki í dönsku úrvalsdeildinni og skoraði í þeim 12 mörk. Hann náði þó ekki að skora í átta leikjum með Lyngby BK á síðasta tímabili. Keflavík er í öðru sæti Inkasso deildarinnar fyrir leik kvöldsins en Þróttarar geta þá náð öðru sætinu með því að taka stig á móti ÍR. Keflvíkingar eiga síðan sinn leik í umferðinni inni á móti Leikni F sem fram fer á morgun og þar gæti Lasse Rise fengið sitt fyrsta tækifæri með liðinu.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Fótbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Sjá meira