Veiði

Heldur róleg veiði í Blöndu en sem komið er

Karl Lúðvkísson skrifar
Breiðan í Blöndu er magnaður veiðistaður.
Breiðan í Blöndu er magnaður veiðistaður. Mynd: Lax-Á
Blanda er og hefur verið ein af aflahæstu ám landsins þrátt fyrir að taka oft ansi miklar dýfur á milli góðu áranna.

Veiðin í Blöndu í fyrra var 2386 laxar sem þykir góð veiði í ánni en bestu árin í henni frá aldamótum voru 2015 en það var metár í ánni þegar 4829 laxar komu á land.  Meira að segja á því slaka sumri 2014 veiddust 1931 lax í ánni á meðan flestar ár landsins voru í mestu niðursveiflu sem mælst hefur.  Árið 2013 veiddust 2611, 2011 veiddust 2032 og árið á undan 2770.  Eina árið sem rétt er að nefna sem eitt af bestu árum Blöndu er 2009 þegar 2413 laxar veiddust.

Nú ber svo við að veiðin í sumar hefur verið mjög róleg en 19. júlí voru aðeins komnir 745 laxar á land sem er langt undir veiði sama tíma á þeim viðmiðunarárum sem teljast til góðra ára.  Á sama tíma 2016 voru komnir 1492 laxar,  2015 voru þeir 1638,  2014 voru 1060 komnir á land og 2013 voru 1471 laxar veiddir á þessum tíma.  Eitt einkennir þó taktinn í veiðinni í Blöndu samfara straumum en það er kippur sem kemur oft í hana með sterkum smálaxagöngum seinni part júlí og nú er þess beðið í Blöndu og fleiri ám á norðurlandi að smálaxinn fari að láta sjá sig en þetta þykir vera heldur rýrt smálaxaár á norðurlandi það sem af er.

Aðeins Blanda og Miðfjarðará af komast þó á listann yfir aflahæstu ár landins þetta sumarið en sem komið er en Laxá á Ásum er þar í ellefta sæti með 375 laxa.  Þar vantar líka þann kraft í veiðina sem einkennir þessa frægu á.  Laxá í Aðaldal er aðeins með 317 laxa sem er um 200 löxum minni veiði en í fyrra og Víðidalsá er með 315 á móti 425 í fyrra en þá veiddust samtals 1137 laxar í ánni.  Það er vonandi að það rætist úr smálaxagöngum á norðurlandi á þessum straum annars er árið heilt yfir heldur undir meðaltali og væntingum sem voru á lofti eftir góða byrjun á tímabilinu í sumum ánum.










×