Getspakur Reykvíkingur í sjöunda himni: Breytti 20 evrum í 2 milljónir á ævintýralegan hátt Jakob Bjarnar skrifar 13. júlí 2017 11:51 Líkurnar á þessum úrslitum voru ekki taldar miklar en okkar maður var hins vegar með þetta allt á hreinu, og breytti 20 evrum sem hann fékk í bónus frá Betsson í tvær milljónir. Takk fyrir.
Maður nokkur var með 13 leiki rétta á seðli hjá Betsson. Líkur á slíku eru fáránlega litlar en hann hitti á það. Og breytti við þetta 20 evrum, sem hann hafði fengið í bónusgjöf frá Betsson, í tvær milljónir í íslenskum krónum. Maðurinn, sem ekki vill láta nafns síns getið af ýmsum ástæðum, var býsna hress þegar Vísir ræddi við hann nú í morgun. Enda eru líkurnar á því að úrslit verði með þessum hætti einn á móti 897 og sjaldgæft að menn setji 2,400 krónur á jafn ólíklegan stuðul.Eistar björguðu seðlinum í hús„Þetta var skemmtilegt,“ segir hann fjallhress en hann veðjaði á leiki í Evrópukeppninni 6. þessa mánaðar. Hann sagði að það hafi tekið verulega á þegar síðasti leikurinn á seðlinum datt í hús. Leikirnir á seðlinum hófust þá um daginn en þessi fór fram um kvöldið. B36 frá Þórshöfn gegn Nomme Kalju frá Eistlandi. „Stórkostlegur leikur að fylgjast með. Ég hélt reyndar fyrst að þetta væru Finnar og ef ég hefði áttað mig á því að þetta voru Eistar, sem aldrei hafa þótt neinir snillingar í fótbolta, hefði ég aldrei veðjað svona. Þetta er svo finnskt nafn: Nomme Kalju. En, það var 1 – 1, lítið eftir og ég var farinn að óttast að Eistarnir væru búnir að pakka í vörn. Til að halda fengnum hlut. En þeir potuðu inn einu og þá datt þetta í hús.“Hér getur að líta seðilinn góða. Líkurnar á því að úrslit verði með þessum hætti eru einn á móti 897.Eins og sjá má á veðmálaseðlinum sem Vísir birtir hér ofar var stuðullinn 2,27 á þann leik, þannig að hann gaf ágætlega. Færeyingar eru á uppleið í fótboltanum eins og FH í Hafnarfirði komust að raun um í sínum Evrópuleik. Maðurinn segir að sem betur fer hafi FH ekki verið á seðlinum. „Þeir voru ekki að spila þarna. Ég var með nokkra vafninga í gangi í gær og FH-ingar skemmdu nokkra þeirra. Ég ætla að gefa þeim séns á að borga til baka og veðja á þá þegar þeir fara til Færeyja. Nú lít ég svo á að þeir skuldi. Annars mæti ég í Kaplakrika í allt sumar og öskra ókvæðisorðum á þá.“Kampavín og koníak á eftirEins og lesendur Vísis eru ef til vill farnir að átta sig á þá er maðurinn kátur. Hann segir að flesta muni um tvær milljónir. En, þetta er ekki fugl í hendi því af því að það sem hann lagði undir var bónusvinningur þá þurfi hann að velta þessum tveimur milljónum í gegnum kerfið. Maðurinn telur eðlilegt að Betsson hafi slíka skilmála á vinninga sem koma í gegnum bónusveðmál, sem þetta var. „Ég hef 60 daga til þess. Nú er ég bara í vinnunni að „gambla“ og hef mjög gaman að því.“ Hann segir að hann geti lagt allt á einn leik og fengið þá útgreitt, eða ekki, en hann þorir ekki að taka slíkan séns. En, um leið og ég er búinn að velta þessu í gegn og fá útborgað, þá verður kampavín og koníak á eftir. Virkilega sætt að sjá eitthvað svona detta inn.“Tekur ekki smálán fyrir veðmálum sínumMaðurinn ónafngreindi segist enginn sérfræðingur en hann hefur hins vegar fylgst vel með fótboltanum árum saman og sérstaklega Evrópukeppninni og leikjum þar. Og hann segir að það auki verulega á ánægjuna að fylgjast með leikjum ef veðjað er á þá, og það hefur hann gert lengi. „Það verður að segjast alveg eins og er. Leikirnir verða miklu skemmtilegri fyrir vikið. Þetta dregur mann áfram í fræðsluleit um lið og landafræði. Ég er með sæmilegan reikning hjá Betsson. Stundum hefur hann verið fínn. Stundum ekki. Maður er ekkert að taka smálán fyrir þessu. Ef það er eitthvað til á debetinu, þá hendir maður á þetta,“ segir hinn fjallhressi og káti viðmælandi Vísis.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira