Áfengisneysla hér á landi aukist um tugi prósenta síðan 1980 Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. júní 2017 12:25 Áfengisneysla hér á landi hefur aukist nokkuð mikið á seinustu áratugum en líklegt má telja að fjöldi ferðamanna spili inn í. vísir/ernir
Áfengisneysla hefur aukist um 73 prósent hér á landi milli áranna 1980 og 2016 en tölurnar eru byggðar á áfengissölu hérlendis. Að því er fram kemur á vef Hagstofunnar var neyslan 2.015 þúsund alkóhóllítrar í fyrra samanborið við rúmlega 1.324 þúsund lítra árið 2000 og 716 þúsund lítra árið 1980. Sé mælt í hreinum vínanda á íbúa 15 ára og eldri var neyslan 7,50 lítrar árið 2016, 6,14 árið 2000 og 4,33 lítrar árið 1980. Áfengisneysla hefur þar af leiðandi aukist um 73 prósent milli áranna 1980 og 2016 sé horft til alkóhóllítra á 15 ára og eldri. „Áfengisneysla fór hægt vaxandi á árunum 1980–1988 en jókst umtalsvert árið1989 þegar sala bjórs var heimiluð hér á landi. Dró síðan úr henni en frá árinu 1994 fór hún stigvaxandi fram til ársins 2007 þegar hún varð hvað mest. Í kjölfarið minnkaði áfengisneysla aftur í nokkur ár en jókst á ný og var mest árið 2015, 7,66 alkóhóllítrar á íbúa 15 ára og eldri. Ætla má að fjölgun ferðamanna til landsins á síðustu árum eigi sinn þátt í þeirri aukningu sem orðið hefur á sölu áfengis undanfarið. Mælt í hreinum vínanda á íbúa 15 ára og eldri var neysla bjórs 4,24 lítrar árið 2016, neysla léttra vína 2,09 lítrar og neysla sterkra drykkja 1,16 lítrar,“ segir á vef Hagstofunnar en nánar má lesa um málið þar.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Fleiri fréttir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Bein útsending: Kristrún með ávarp vegna atkvæðagreiðslunnar Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Sjá meira