Körfubolti

Enn einn stórleikurinn hjá Martin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Martin Hermannsson.
Martin Hermannsson. vísir/bára
Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson fór enn eina ferðina á kostum í franska boltanum í kvöld er lið hans, Charleville, vann útisigur, 67-76, á Denain.

Martin skoraði 24 stig í leiknum og var stigahæstur á vellinum.

Hann setti niður fimm af átta tveggja stiga skotum sínum og þrír þristar fóru niður í fjórum tilraunum.

Charleville er í þriðja sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×