Reebok Fitness og Sporthúsið opin fyrir því að lyfjaprófa korthafa Birgir Olgeirsson skrifar 27. apríl 2017 11:24 Guðríður Erla Torfadóttir, framkvæmdastjóri Reebok Fitness, og Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins. Vísir/ÞORKATLA ELÍN SIGURÐARDÓTTIR
Forsvarsmenn líkamsræktarstöðvanna Reebok Fitness og Sporthússins eru jákvæðir fyrir samstarfi við sjálfstætt lyfjaeftirlit um lyfjaprófanir á korthöfum í stöðvum þeirra.Greint var frá því á Vísi fyrr í mánuðinum að hugmyndir séu uppi um að gera Lyfjaeftirlit Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands að sjálfstæðri stofnun. Er það ferli sem er farið að tíðkast víða um heim og hefur alþjóðlyfjaeftirlitsstofnunin WADA mælt með þessu fyrirkomulagi.Sjá einnig: Steraæði á Íslandi Með þannig fyrirkomulagi gæti sjálfstæð lyfjaeftirlitsstofnun gert samninga við óháðar íþróttagreinar sem eru ekki keppnisgreinar á Ólympíuleikunum eða innan ÍSÍ. Slík stofnun gæti gert samninga við líkamsræktarstöðvar og óháðar íþróttagreinar þess efnis að lyfjaeftirlitsstofnunin framkvæmi lyfjapróf á þeim sem eru korthafar. Yrði fyrirkomulagið þannig að korthafar skrifa undir skilmála þar sem þeir gefa samþykki fyrir því að gangast undir lyfjapróf ef svo ber undir.Úr Reebok Fitness.Vísir/ErnirBer skylda til að taka ábyrgð Guðríður Erla Torfadóttir, framkvæmdastjóri Reebok Fitness, segir í samtali við Vísi að Reebok Fitness hefði fyrir fimm árum sest á fund með ÍSÍ varðandi slíkt samstarf að danskri fyrirmynd, en lyfjaeftirlitið gat á þeim tíma ekki gert samninga við félög eða fyrirtæki utan sambandsins. „Nú er það hins vegar á dagskránni hjá þeim að skilja sig frá ÍSÍ og þá verður hægt að hefja umræðuna á ný.“ Guðríður Erla segir Reebok Fitness vera mjög opið fyrir slíku samstarfi enda um mikilvægt verkefni að ræða fyrir komandi kynslóðir. „Og okkur ber skylda til að taka ábyrgð í þessum málum. Þetta samstarf myndi passa vel við okkar stefnu að stuðla að heilbrigðum lífsstíl fyrir alla,“ segir Guðríður.Virðist ekki mega benda á hið augljósa Hún segist aðspurð verða vör við mikla steranotkun í samfélaginu. „Eins og sést á samfélagsmiðlum þar sem sumar fyrirmyndir nota vöðvaaukandi efni en það virðist ekki mega benda á hið augljósa. Það sem við skynjum því miður er að ungir einstaklingar eru að nota stera og önnur ólögleg efni og virðist sem skammtarnir hafi farið stækkandi. Innan Reebok Fitness verðum við ekki vör við mikla steranotkun þó svo hún sé til staðar eins og á flestum öðrum líkamsræktarstöðvum.“Þröstur Jón Sigurðsson segir mikilvægt að stuðla að forvörnum gegn steranotkun.Vísir/Anton BrinkLét lyfjaprófa einkaþjálfara „Það hljómar mjög spennandi að taka þátt í slíku verkefni,“ segir Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins, í samtali við Vísi um málið. Þröstur segist hafa samið við ÍSÍ fyrir nokkrum árum um að láta lyfjaprófa einkaþjálfara í Sporthúsinu handahófskennt. „Þá voru dregnir út þrír þjálfarar sem fóru svo beint í lyfjapróf. Kostnaðurinn við prófin er verulegur og því hef ég verið hikandi við að gera þetta aftur,“ segir Þröstur.Vill örugglega enginn reka „stera-stöð" Hann segist ekki átta sig á því hversu algeng steranotkun er en óttast að hún sé mun algengari en fólk heldur. „Það er alveg ljóst að það getur enginn rekstraraðili líkamsræktarstöðva viljað hafa þann stimpil á sér að reka „stera-stöð“ ef komið verður á virku eftirlit og lyfjaprófum. Einhverjar stöðvar munu ekki samþykkja að láta prófa sína viðskiptavini og þangað munu þeir sem efnin nota vafalítið leita. Þetta verður þó vonandi til þess að notkunin minnki og óhörðnuð ungmenni leiðist síður út í neyslu,“ segir Þröstur. Hann er á því að allar stóru líkamsræktarstöðvarnar þurfi að vera með í þessu verkefni ef það á að skila tilætluðum árangri. Hann segir einnig mikilvægt að halda uppi öflugum forvörnum og fræðslu um þessi mál. „Það er ekkert mikilvægara en að ungmenni og fólk átti sig á því að það er ekki „cool“ að nota stera.“Tíðkast í Danmörku Þetta fyrirkomulag, að lyfjaprófa korthafa líkamsræktarstöðva, tíðkast í Danmörku en árið 2014 féllu 152 af 343 sem voru boðaði í lyfjapróf. Þeir sem féllu mældust annaðhvort með gildi sem sýndu fram á notkun vefaukandi stera eða neituðu einfaldlega að gangast undir prófið. Árið 2012 féllu 104 og 101 árið 2013.Fyrirhuguð lyfjaeftirlitsstofnun vill fá að lyfjaprófa gesti líkamsræktarstöðva.Vísir/GettyÍ umfjöllun Metroexpress í Danmörku kom fram að þar í landi stundi 650 þúsund manns líkamsræktarstöðvar sem hafa gengist undir þessa skilmála danska lyfjaeftirlitsins. Korthafar líkamsræktarstöðva í Danmörku sem falla á lyfjaprófi eru settir í tveggja ára bann. Skilaboðin þar úti eru skýr, þeir sem nota vefaukandi stera eru ekki velkomnir í líkamsræktarstöðvar en stöðvarnar eru sagðar hafa hag af því að vera hreinar af sterum. Þannig geta þær auglýst sig sem „hreinar stöðvar“ og það sé eitthvað sem sé eftirsóknarvert í augum þeirra sem ekki nota stera.Ákvæði í skilmálum Reebok Fitness áskilur sér rétt til að setja viðskiptavini sína í lyfjapróf. Þetta kemur fram í skilmálunum sem þeir sem kaupa sér aðgang að stöðinni skrifa undir. Þar segir að prófið sé framkvæmt samkvæmt reglum og stöðlum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og að tekið sé mið af bannlista WADA. Slíkt ákvæði er ekki að finna í skilmálum Sporthússins en samkvæmt upplýsingum þaðan er öll notkun ólöglegra efna þar innanhúss litin hornauga. World Class er með slíkt ákvæði í sínum skilmálum. Verði einhver uppvís að notkun eða vörslu ólöglegra efna þar verður viðkomandi skilyrðislaust rekinn frá stöðinni. Ef sala eða dreifing á ólöglegum efnum fer fram innan veggja World Class verður málinu umsvifalaust vísað til lögreglu.
Tengdar fréttir Steraæði á Íslandi Læknar ávísa mun meira af sterum en áður, saksóknari sér tengingu við heimilisofbeldismál og eftirlit í líkamsræktarstöðvum er handan við hornið. Sérfræðingur segir stera ekki einkamál þeirra sem þá nota. 12. apríl 2017 11:00 Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Innlent Fleiri fréttir Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu Sjá meira
Steraæði á Íslandi Læknar ávísa mun meira af sterum en áður, saksóknari sér tengingu við heimilisofbeldismál og eftirlit í líkamsræktarstöðvum er handan við hornið. Sérfræðingur segir stera ekki einkamál þeirra sem þá nota. 12. apríl 2017 11:00