Tyrkir hóta að binda enda á flóttamannasamkomulagið
Forsetinn sagði í sjónvarpsviðtali í dag að Evrópa stefndi að því að drukkna í eigin ótta. Hatur gegn Tyrkjum og Íslam væri að aukast og að Evrópubúar væru jafnvel hræddir við flóttafólk.
„Við getum bundið enda á flóttamannasamkomulagið,“ sagði Erdogan.
Utanríkisráðherra Tyrklands, Mevlut Cavusoglu, sló á svipaða strengi í dag. Þá skammaðist hann yfir því að ESB hefði ekki tryggt Tyrkjum þann rétt að ferðast um Evrópu án vegabréfsáritana, eins og samkomulagið sagði til um.
Samkvæmt samkomulaginu sem um ræðir myndu Tyrkir herða landamæraeftirlit sitt og stöðva smyglara í því að reyna að koma flóttafólki yfir Eyjahaf til Grikklands. Flóttafólk sem komst til Grikklands var svo sent aftur til Tyrklands.
Síðan samkomulagið var samþykkt í mars í fyrra hefur tilraunum flóttafólks við að reyna að komast til Grikklands fækkað til muna.
Undanfarna daga hefur Erdogan ítrekað kallað Hollendinga og Þjóðverja nasista og hefur hann jafnvel sagt Hollendinga vera ábyrga fyrir versta fjöldamorði Evrópu eftir seinni heimsstyrjöldina.
Sambandið stirt áður
Saga málsins er sú að Tyrkir hafa verið að senda ráðherra til Evrópu til að tryggja sér atkvæði Tyrkja sem búa þar í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu í Tyrklandi þann 16. apríl. Fjölmargir Tyrkir búa í Evrópu og sem dæmi eru allt að 1,4 milljónir Tyrkja sem geta kosið í Þýskalandi. Um 400 þúsund kosningabærir Tyrkir búa í Hollandi.
Atkvæðagreiðslan er um stjórnarskrárbreytingar sem gefa Erdogan mun meiri völd en forsetar í Tyrklandi hafa haft áður. Embætti forsætisráðherra yrði í raun lagt niður.
Samband Erdogan og ráðamanna í Evrópu var stirt fyrir vegna ýmissa mannréttindabrota í Tyrklandi og aðgerðir stjórnvalda í kjölfar valdaránstilraunarinnar hluta hersins þar í sumar.
Þann 2. mars komu embættismenn í Gaggenau í Þýskalandi í veg fyrir kosningafund Bekir Bozdag, dómsmálaráðherra Tyrklands, og sögðu þeir ástæðuna vera áhyggjur vegna öryggis og mannfjölda. Stjórnendur annarra borga í Þýskalandi fylgdu þeirri ákvörðun.
Yfirvöld í Hollandi bönnuðu hins vegar Tyrkjum að halda kosningafundi þar og meinuðu flugvél Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, að lenda í Hollandi. Þá var Fatma Betul Sayan Kaya, fjölskylduráðherra Tyrklands, vísað frá landinu.
Sérfræðingar telja Hollendinga einfaldlega hafa fallið í gildru Erdogan. Hann hafi í raun verið að leita sér að óvini til að þjappa þjóðernissinnum heima fyrir á bak við sig.
Tengdar fréttir
Erdogan sýnir klærnar
Skoðanakannanir sýna að þjóðaratkvæðagreiðsla um breytingar á stjórnarskrá í Tyrklandi gæti farið á hvorn veginn sem er.
Erdogan segir nasisma á lífi í vestrinu
Forseti Tyrklands gagnrýnir hollensk stjórnvöld harðlega. Utanríkisráðherrann kallar ríkið höfuðstað fasismans. Ráðherrar Tyrkja ætluðu að afla stuðnings við stjórnarskrárbreytingar á meðal Tyrkja sem staðsettir eru í Hollandi en
Leiðtogar ESB-ríkja segja ummæli Erdogan vera óásættanleg
Recip Tayip Erdogan Tyrklandsforseti sakaði um helgina Þjóðverja og Hollendinga um nasisma.
Hollenska sendiherranum meinað að koma aftur til Tyrklands
Spennan á milli Hollendinga og Tyrkja magnast enn.
Erdogan: "Við þekkjum Holland eftir fjöldamorðin í Srebrenica“
Tyrklandsforseti hefur aftur ráðist gegn Hollandi með því að segja þá ábyrga fyrir mesta fjöldamorðinu í Evrópu eftir síðari heimsstyrjöldina.