Ari: Veit af umræðu dómaranna um mig á Facebook Kristinn Páll Teitsson skrifar 1. mars 2017 22:30 María Björnsdóttir og Mia Loyd eigast við í leiknum í kvöld en Mia fékk ódýra fimmtu villu í leiknum. Vísir/anton „
Ég er virkilega svekktur, við spiluðum þetta virkilega vel en það var mjög heimskulegt hjá erlenda leikmanninum mínum að fara útaf á villu eins og þessari,“ sagði Ari Gunnarsson, þjálfari Valsliðsins, svekktur eftir tapið. „Hún segist ekkert hafa sagt og dómararnir sögðu að hún hefði verið að kvarta. Svo þegar ég sóttist eftir svörum sögðu þeir að hún hefði horft skringilega á sig. Ef það er orðið að tæknivillu eru þessir dómarar orðnir helvíti viðkvæmir.“Sjá einnig:Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Snæfell 70-77 | Naumur sigur meistaranna Óhætt er að segja að Ari hafi verið ósáttur með dómgæsluna í leiknum í kvöld. „Ég set út á dóma í upphafi leiks og fæ strax aðvörun um að haga mér. Svo sé ég Leif taka utan um Inga á leiðinni inn í klefa í hálfleik þegar hann er að kvarta. Ég vill bara fá sömu meðferð og aðrir, ég veit alveg hvað þeir eru að tala um í spjallinu sínu á Facebook. Ég fæ ekki það sama og aðrir þjálfarar,“ sagði Ari og hélt áfram: „Þeir þorðu ekki að taka sénsinn á því að dæma Aaryn út hjá þeim, hún átti að fá fimmtu villuna mun fyrr en þeir höfðu ekki kjark til þess. Dómarinn sagði að honum hefði ekki fundist þetta rétti tímapunkturinn þegar ég ræddi við hann eftir leik. Hann vissi alveg um hvað ég var að tala um og ég er hræddur um að hann pissi undir í nótt.“ Aaryn átti stórleik undir restina og það kostaði Valskonur eflaust stigin. „Hún var frábær, örugglega með hátt í tuttugu stig þarna undir lokin. Ef henni hefði verið vísað af velli með fimmtu villuna eins og réttmætt var þá veit ég alveg hvernig þessi leikur hefði farið.“
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira