Systurnar úr Borgarnesi hafa aldrei tapað bikarúrslitaleik saman Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2017 08:00 Guðrún Ósk Ámundadóttir Vísir/Anton
Skallagrímur skrifar kafla í sögu félagsins í dag þegar kvennalið félagsins spilar úrslitaleikinn í Maltbikarnum í Laugardalshöllinni. Þetta er í fyrsta sinn sem Skallagrímur á lið í bikarúrslitum og félagið getur unnið sinn fyrsta stóra titil í 53 ár eða síðan kvennalið félagsins varð Íslandsmeistari í fyrsta og eina skiptið árið 1964. Í liði Skallagríms eru samt leikmenn sem hafa reynslu af því að vinna titla og þar á meðal tvær sigursælar systur uppaldar í Borgarnesi. Þær Guðrún Ósk og Sigrún Sjöfn Ámundadætur hafa báðar unnið bikarinn oft og mörgum sinnum áður. Það sem meira er að sú eldri, Guðrún Ósk, hefur aldrei tapað bikarúrslitaleik. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir tapaði sínum fyrsta og eina bikarúrslitaleik með Grindavík í fyrra. Þær hafa hinsvegar aldrei tapað bikarúrslitaleik þegar þær hafa veruð í sama liði eins og er raunin núna. Guðrún Ósk Ámundadóttir hefur unnið bikarinn alls fimm sinnum með Haukum (4) og KR (1) síðast árið 2014 með Haukum. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hefur unnið bikarinn þrisvar sinnum með Haukum (2) og KR (1). Guðrún Ósk var liðsfélagi hennar í öllum þremur bikarmeistaratitlinum eða 2005 og 2007 með Haukum og 2009 með KR. Guðrún vann bikarinn síðan án hjálpar systur sinnar með Haukaliðinu 2010 og 2014. Jóhanna Björk Sveinsdóttir, núverandi leikmaður Skallagríms, varð aftur á móti bikarmeistari með Guðrúnu fyrir þremur árum. Kristrún Sigurjónsdóttir, núverandi leikmaður Skallagríms, varð síðan bikarmeistari með systrunum 2005 og 2007. Úrslitaleikur Skallagríms og Keflavíkur hefst klukkan 13.30 í Laugardalshöllinni. Þar mætast nýliðar Skallagríms sigursælasta bikarliði allra tíma á Íslandi en Keflavíkurkonur hafa unnið þrettán bikarmeistaratitla.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn KR - KA | Hraðlestin komin aftur af stað? Íslenski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira