Einu frákasti frá átjándu þreföldu tvennunni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. janúar 2017 07:15 Russell Westbrook í leiknum í nótt. Vísir/AP
Russell Westbrook vantaði aðeins eitt frákast til að ná sinni átjándu þreföldu tvennu þetta tímabilið er lið hans, Oklahoma City Thunder, hafði betur gegn Chicago Bulls í NBA-deildinni í nótt, 109-94. Westbrook var með 21 stig, fjórtán stoðsendingar og níu fráköst. Það er undir meðallagi hjá honum í vetur þar sem kappinn hefur að jafnaði skorað 31,4 stig í leik, tekið 10,6 fráköst og gefið 10,3 stoðsendingar. Samtals eru Westbrook og James Harden, leikmaður Houston, með 27 þrefaldar tvennur í vetur en allir aðrir leikmenn í NBA-deildinni eru samanlagt með sautján þrefaldar tvennnur. Jimmy Butler var afar ólíkum sjálfum sér vegna veikinda. Hann skoraði aðeins eitt stig og náði ekki að skora úr opnum leik í sex tilraunum. Chicago hafði unnið þrjá leiki í röð en átti í raun aldrei möguleika í nótt. Oklahoma City er í sjöunda sæti vesturdeildarinnar en Chicago í níunda sæti í austrinu. New Orleans vann New York Knicks, 110-96, þar sem Anthony Davis skoraði 40 stig og tók átján fráköst, þrátt fyrir að hafa farið meiddur í síðari hálfleik. New York hefur nú tapað átta af síðustu níu leikjum sínum en Derrick Rose var ekki með af ókunnum ástæðum og Carmelo Anthony var rekinn af velli fyrir að rífast við dómara. Minnesota vann Dallas, 101-92. Karl-Anthony Tomas var með 34 stig og ellefu fráköst fyrir Minnesota sem vann langþráðan sigur eftir fjóra tapleiki í röð.
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Sjá meira