Bikardrottningin og bikarkóngurinn draga í Maltbikarnum | Fylgist með hverjir mætast Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2017 12:59 Vísir/Samsett
Tveir sigursælustu leikmennirnir í sögu bikarkeppni KKÍ, þau Anna María Sveinsdóttir og Teitur Örlygsson, munu sjá um að draga í undanúrslitin hjá körlum og konum en dregið verður klukkan 13.00. Alls unnu þau Anna María Sveinsdóttir og Teitur Örlygsson sautján bikarmeistaratitla saman sem leikmenn og Teitur hefur síðan bætt við tveimur bikarmeistaratitlum sem þjálfari. Þau hafa því í sameiningu komið að nítján bikarmeistaratitlum. Anna María Sveinsdóttir varð tíu sinnum bikarmeistari sem leikmaður Keflavíkur frá 1988 til 2004 þar af einu sinni sem spilandi þjálfari (1998). Teitur Örlygsson varð sjö sinnum bikarmeistari sem leikmaður Njarðvíkur frá 1987 til 2002 en hann gerði einnig Stjörnuna tvisvar sinnum að bikarmeisturum eða árin 2009 og 2013. Það hefur enginn leikmaður skorað fleiri stig í bikarúrslitaleik en þau Anna María Sveinsdóttir og Teitur Örlygsson. Anna María skoraði á sínum tíma 201 stig í 13 leikjum með Keflavík eða 15,5 stig að meðaltali í leik. Mest skoraði hún 24 stig í bikarúrslitaleiknum 1992. Teitur skoraði á sínum tíma 199 stig í 10 leikjum eða 19,9 stig að meðaltali í leik. Mest skoraði hann 38 stig í bikarúrslitaleiknum 1994.Í pottinum hjá körlunum eru liðin KR, Grindavík, Þór Þórlákshöfn og Valur.Í pottinum hjá konunum eru liðin Keflavík, Snæfell, Skallagrímur og Haukar.Tweets by kkikarfa
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Orri Steinn einn verðmætasti ungi leikmaður heims Fótbolti Galdraskot Óðins vekur athygli Handbolti „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Íslenski boltinn Hræðileg mistök hjá Elíasi í Evrópudeildinni í gærkvöldi Fótbolti Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina Íslenski boltinn Toppsætið endurheimt með átta marka stórsigri Fótbolti Hetja United meiddist ekki við það að fagna markinu Enski boltinn Stóð á boltanum áður en hún sólaði andstæðinginn upp úr skónum Fótbolti Spænska stjarnan flutt á sjúkrahús eftir slys á æfingu Fótbolti Freyr segir ummæli sín tekin úr samhengi Fótbolti Fleiri fréttir Körfuboltamennirnir sem Nablinn væri mest til í að taka tali Uppgjörið: Ísland - Slóvakía 70-78 | Svekkjandi tap gegn Slóvakíu Davíð Tómas dæmir landsleik í Helsinki í dag Þreytir frumraun þrítug: „Beðið eftir þessu í tvö ár“ „Verður sérstök stund fyrir hana“ „Þessi takki sem allir halda að Valur sé að fara kveikja á er ekki til“ Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Klikkaði ekki á skoti í fyrsta leik og var stigahæstur „Þessi tími hefur liðið mjög hægt fyrir mér“ Pavel um varnarleik Keflavíkur: Á að særa stolt þitt Jordan-treyja seldist á 642 milljónir króna Fjórði stigahæsti kaninn en sá með lélegustu skotnýtinguna Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant „Þurfum að passa upp á það að hafa gaman“ Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Popovich frá um óákveðinn tíma vegna veikinda Wendell Green rekinn frá Keflavík Sá langelsti stóð upp úr í Suðurlandsslag Erfitt hjá „sultunni“ Joel Embiid NBA-stjörnurnar þurftu að taka lestina á leikinn sinn Hannes í leyfi Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 92-87 | Stólarnir fyrstir til að vinna Stjörnuna Alba Berlin í vandræðum og stórleikur Martins dugði ekki til sigurs Mættur til tengdó og gírar sig upp fyrir Síkið Framlenging Körfuboltakvölds: Njarðvík getur orðið Íslandsmeistari eins og Valur Tvö lið enn ósigruð og Thunder að eiga bestu byrjun í sögu félagsins Réðst á blaðamann vegna ummæla um látinn bróður hans og nýfæddan son „Það þarf svo margt að ganga upp til að þeir vinni“ Minnkuðu muninn um tuttugu stig á þremur mínútum gegn gamla liði Elvars Sjá meira