Bestu viðbrögðin við því þegar Giannis blokkaði Westbrook | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2017 22:45 Giannis Antetokounmpo og Russell Westbrook. Vísir/AP
Grikkinn Giannis Antetokounmpo er á hraðri leið með að komast í hóp stærstu stjarna NBA-deildarinnar í körfubolta. Antetokounmpo hefur átt frábært tímabil með Milwaukee Bucks og það voru margir að fylgjast með því í nótt þegar hann fékk að reyna sig á móti hinum magnaða Russell Westbrook. Russell Westbrook hefur átt sviðsljósið á þessu tímabili enda með þrennu að meðaltali í leik og hann hélt að hann væri að bæta við tveimur öruggum stigum í einu hraðaupphlaupinu í nótt. Giannis Antetokounmpo var aftur á móti ekki sammála, hljóp hann uppi með sínum löngu stóru skrefum og blokkaði Russell glæsilega. Bestu viðbrögðin við þessu varða skoti Giannis Antetokounmpo átti örugglega ungur strákur sem var mættur í BMO Harris Bradley Center í Milwaukee í gær. Strákurinn mætti stoltur til leiks í búningi Russell Westbrook en eftir þetta varða skot þá klæddi hann sig í Giannis Antetokounmpo treyju eins og sjá má hér fyrir neðan. Russell Westbrook verður örugglega í sérflokki næstu árin enda bara 28 ára en Antetokounmpo er sex árum yngri og verður betri og betri með hverju tímabili. Það væri því ekkert slæm ákvörðun að fara að halda upp á Giannis í dag. Giannis Antetokounmpo og félagar fögnuðu á endanum fjögurra stiga sigri en Grikkinn var með 26 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar í leiknum. Russell Westbrook endaði leikinn með 30 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar og var því undir meðaltalinu sínu í öllum þremur tölfræðiþáttunum. Hér fyrir neðan má sjá blokkið og svo viðbrögð stráksins.
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Sjá meira