Hildur áfram ósigruð sem þjálfari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2016 19:44 Hildur Sigurðardóttir ásamt Sigríði H. Kristjánsdóttur, formanni körfuknattleiksdeildar Breiðabliks. Mynd/Heimasíða Breiðabliks
Hildur Sigurðardóttir er að byrja þjálfaraferil sinn vel í körfuboltanum en þessi sigursæli leikmaður tók við kvennaliði Breiðabliks fyrir þetta tímabil. Breiðablik er í 1. deildinni og hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína undir stjórn Hildar. Hildur er því líkleg til að koma liðinu upp í Domino´s deildina í fyrstu tilraun. Breiðablik vann ellefu stiga sigur á KR í kvöld, 59-48, en Blikakonur höfðu áður unnið Þór Akureyri og Fjölni. Hildur hefur þar með unnið þrjá fyrstu mótsleiki sína sem þjálfari og er greinilega að finna sig vel á nýjum stað. Leikurinn í kvöld var samt fyrsti sigur Hildar á kvenþjálfara. Heiðrún Kristmundsdóttir þjálfar lið KR en karlar þjálfa bæði lið Þórs og lið Fjölnis. Þetta var jafnramt fyrst tap KR-liðsins í vetur. Hildur lagði skóna á hilluna vorið 2015 eftir að hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn tvö ár í röð með sínu uppeldisfélagi, Snæfelli. Hildur hafði áður orðið fimm sinnum Íslandsmeistari með KR. Telma Lind Ásgeirsdóttir skoraði 15 stig fyrir Blikaliðið í kvöld, Shanna Dacanay var með 11 sitg og Isabella Ósk Sigurðardóttir skoraði 10 stig og tók 12 fráköst. Kristbjörg Pálsdóttir var með 13 stig hjá KR.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum þremur vikum eftir að hún missti fóstur Sport Móðir og sonur keppa bæði á þessum Ólympíuleikum Sport Ákærður fyrir morðið á kærustu sinni Sport Mætir á sinn sextugasta Super Bowl-leik en segir að þessi sé sá síðasti Sport Fleiri fréttir Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Martin missir af landsleikjunum Elvar var stiga- og stoðsendingahæstur í sigri Jakob: Geggjað að fá þennan stuðning frá okkar fólki Stjörnumenn svekktir eftir leik: „Enginn í okkar liði átti A-klassa frammistöðu“ „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum „Við erum ekkert að einbeita okkur að því og ætlum bara að taka leikinn“ Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins Sjá meira