Tvíhöfði í kvennakörfunni í beinni á laugardaginn Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. október 2016 16:00 Pálína Gunnlaugsdóttir og meistarar Snæfells verða í beinni á laugardaginn. vísir/ernir
Stöð 2 Sport býður upp á tvíhöfða í Domino's-deild kvenna í körfubolta á laugardaginn í beinni útsendingu þegar fimmta umferðin hefst. Klukkan 14.30 verður leikur Íslandsmeistara Snæfells og Stjörnunnar í Hólminum sýndur beint og í kjölfarið verður skipt yfir til Njarðvíkur þar sem fram fer Reykjanesbæjarslagur erkifjendanna Njarðvíkur og Keflavíkur klukkan 16.30. Báðir leikirnir verða á Stöð 2 Sport 4 HD. Enginn leikur verður í beinni útsendingu í kvöld þegar fjórða umferðin fer fram í heild sinni. Meistaradeildin í fótbolta er með allar rásir Stöðvar 2 Sports herteknar en bætt verður upp fyrir það með tvíhöfða á laugardaginn. Þetta er vafalítið fyrsti tvíhöfðinn í efstu deild kvenna í körfubolta sem sýndur er í beinni útsendingu og virkilega spennandi leikir í boði. Stjarnan hefur komið skemmtilega á óvart við upphaf leiktíðar og er á toppnum og þá er Njarðvík einnig að spila mun betur en búist var við. Ungt lið Keflavíkur er einnig búið að vinna tvo af fyrstu þremur leikjum sínum líkt og meistarar Snæfells.Tvíhöfðinn á laugardaginn: 14.30 Snæfell - Stjarnan, Stöð 2 Sport 4 HD 16.30 Njarðvík - Keflavík, Stöð 2 Sport 4 HD
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport KR - KA | Hraðlestin komin aftur af stað? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira