Bandaríkin og Kína fullgilda Parísarsamninginn um loftslagsmál Atli Ísleifsson skrifar 3. september 2016 10:36 Barack Obama Bandaríkjaforseti mætti ásamt öðrum til fundar leiðtoga G20-ríkjanna í kínversku borginni Hangzhou fyrr í dag. Vísir/AFP
Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Kína, sem saman bera ábyrgð á um 40 prósent af losun gróðurhúsalofttegunda, hafa bæði fullgilt Parísarsamninginn um loftslagsmál. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði þegar hann mætti til fundar hjá leiðtogum G20-ríkjanna í kínversku borginni Hangzhou fyrr í dag, að sagan myndi leiða í ljós að dagurinn í dag hafi skipt sköpum í baráttunni við loftslagsbreytingar.Í frétt BBC kemur fram að ríki heims hafi í desember síðastliðinn komið sér saman um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda til að koma í veg fyrir að meðalhiti hækki ekki um meira en tvær gráður. Parísarsamningurinn mun fyrst taka gildi þegar 55 ríki hið minnsta, sem bera ábyrgð að minnsta kosti 55 prósent af losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum, fullgildi samninginn. Tilkynningin í morgun er því stórt skref í þá átt að samningurinn taki gildi og er talinn auka þrýsting á önnur ríki. Kínverska þingið tók ákvörðun um fullgildingu í morgun eftir vikulanga umræðu. Þá greindi Bandaríkjastjórn einnig frá því í morgun að Bandaríkin hefðu fullgilt samninginn. Til þessa höfðu einungis 23 ríki fullgilt samninginn, sem standa fyrir einungis um eitt prósent af losun gróðurhúsalofttegunda.
Loftslagsmál Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira