Spennan fyrir tónleikum Justin Biebers, sem verða annað kvöld og á föstudagskvöld virðist óbærileg meðal helstu aðdáenda ungstirnisins. Ungir aðdáendur goðsins eru þegar mættir í Kórinn þar sem til stendur að halda tónleikana.
Ísleifur B. Þórhallsson tónleikafrömuður hjá Senu lýsti þessu í Bítinu á Bylgjunni:
„Krakkarnir eru byrjaðir að mæta í Kórinn. Ég vil biðja krakka að vera rólegir og biðla til foreldra að segja börnum sínum að vera rólegir. Krakkar eru mættir, reyna að komast inn og svona,“ segir Ísleifur og vill nú rifa seglin varðandi það Bieberæði sem kynnt hefur verið undir undanfarnar vikurnar.
„Og við erum að heyra af umræðum á netinu um að einhverjir ætli að koma í kvöld og tjalda fyrir utan. Og ég vil koma þeim boðum áleiðis að það er ekkert mjög sniðugt að leyfa krökkunum að gera það. Að koma inn í Kór og setja upp tjald og eitthvað svona rugl. Ég efast um að við getum leyft það.“
Bieber er væntanlegur til landsins í dag og víst er að þeir sem eiga miða á tónleikana mega vænta mikils sjónarspils, ef marka má Ísleif, sem segist aldrei hafa séð aðra eins umgjörð um nokkra tónleika.
Allir gestir á tónleika Biebers geta farið frítt með strætó á höfðuðborgarsvæðinu eftir klukkan 14 gegn framvísun miða á tónleikana. Er þetta gert til að reyna að forða umferðaröngþveiti í Kópavogi en gert er ráð fyrir 35 þúsund tónleikagestum.
Æstir aðdáendur Bieber þegar mættir á tónleikana
Tengdar fréttir
Getur Kórinn í Kópavogi tekið á móti öllum tónleikagestum Justin Bieber?
Brunahönnuður segir húsið öruggt
Fleiri en búa í Kópavogi mæta á tónleika Justin Bieber
Uppsetning í Kórnum í fullum gangi - Poppstjarnan væntanleg til landsins
Justin Bieber þurfti að minna á að hann vildi halda tónleika á Íslandi
Chris Gratton, hönnuður og umsjónarmaður tónleika Justins Bieber, er mættur. Hann segir Justin sjálfan hafa valið Ísland sem áfangastað í Evróputúrnum sem hefst á fimmtudaginn í Kórnum.
Stormasamur ferill Justin Bieber: Ungstirnið sem villtist af leið en fann tilganginn að lokum
Ferill skærustu stjörnu heims hefur verið ansi viðburðarríkur.