Ummæli Solo voru kornið sem fyllti mælinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. september 2016 13:00 Óvíst er hvort Solo spilar fleiri landsleiki. vísir/getty
Ummæli Hope Solo eftir leik Bandaríkjanna og Svíþjóðar í 8-liða úrslitum Ólympíuleikanna í Ríó voru ekki eina ástæða þess að hún var dæmd í hálfs árs bann og samningi hennar við bandaríska knattspyrnusambandið rift. Ummælin voru hins vegar kornið sem fyllti mælinn. Þetta segir Jill Ellis, þjálfari bandaríska landsliðsins. Eftir að Bandaríkin töpuðu fyrir Svíþjóð í vítaspyrnukeppni á Ólympíuleikunum gagnrýndi Solo leikstíl sænska liðsins og sagði það vera samansafn af skræfum.Sjá einnig: Svona brást Solo við fregnunum um bannið | Myndband Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Solo kemur sér í fréttirnar vegna atvika utan vallar. Og nú var einfaldlega nóg komið segir Ellis. „Í gegnum tíðina hafa komið upp atvik sem bandaríska knattspyrnusambandið hefur tæklað. Alltaf sagði hún að þetta yrði í síðasta skipti sem eitthvað svona kæmi upp,“ sagði Ellis í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér. „Því miður neyddu ummæli hennar eftir leikinn á Ólympíuleikunum okkur til að bregðast við. Þetta snýst ekki bara um þessi ummæli heldur endurtekin atvik sem hafa varpað neikvæðu ljósi á landsliðið.“ Hin 35 ára gamla Solo hefur verið einn fremsti markvörður heims um langt árabil. Hún hefur leikið 202 landsleiki fyrir Bandaríkin en óvíst er hvort þeir verða fleiri.
Fótbolti HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Fleiri fréttir Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Sjá meira