Hvernig fór Kristinn Ingi að því að klúðra þessu? | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júlí 2016 11:45
Valsmenn eru svo gott sem úr leik í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar eftir 1-4 tap fyrir danska liðinu Brøndby á heimavelli í gærkvöldi. Danirnir voru númeri of stórir fyrir Val sem er í 7. sæti Pepsi-deildarinnar. Staðan var markalaus í hálfleik á Valsvellinum í gær en Brøndby gerði út um leikinn með þremur mörkum á fyrstu 17 mínútum seinni hálfleiks.Sjá einnig: Haukur Páll: Full stórt tap að mínu mati Valsmenn fengu sín færi í leiknum en það besta féll Kristni Inga Halldórssyni í skaut á 52. mínútu. Eftir flotta Valssókn skallaði Nikolaj Hansen að marki, Frederik Rønnow varði en boltinn féll fyrir fætur Kristins Inga sem þurfti bara að ýta boltanum yfir línuna af meters færi til að jafna metin. Kristni Inga tókst hins vegar á einhvern ótrúlegan hátt að setja boltann í slánna og Brøndby slapp með skrekkinn. Tveimur mínútum síðar kom Kamil Wilczek danska liðinu í 0-2 og fór langt með að klára leikinn.Þetta ótrúlega klúður má sjá í spilaranum hér að ofan.
Evrópudeild UEFA Mest lesið McGregor sakaður um nauðgun Sport Bernardo Silva: Man City er á dimmum stað Enski boltinn Aron Einar valinn en enginn Gylfi í hópnum Fótbolti „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Íslenski boltinn „Ung ég hefði verið í andlegu áfalli“ Sport FIFA hótar félögunum stórum sektum Fótbolti Segir æðislegt að fá Aron til sín Handbolti Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann Körfubolti Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Körfubolti Fleiri fréttir Bein útsending: Blaðamannafundur Víkings Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út Sjáðu þrennurnar hjá Díaz og Gyökeres og öll mörkin úr Meistaradeildinni Aron Einar valinn en enginn Gylfi í hópnum „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Bernardo Silva: Man City er á dimmum stað Amorim: Pep Guardiola er svo miklu betri en ég akkúrat núna FIFA hótar félögunum stórum sektum William Cole kom inn af bekknum í Meistaradeildarsigri Dortmund Ísland náði jafntefli gegn Spáni PSV og Zagreb skoruðu fjögur Diaz með þrennu í þægilegum sigri Liverpool Vandræði Real halda áfram eftir Milan-sigur á Santiago Bernabéu Ótrúlegur sigur Sporting í síðasta heimaleik Amorim Komu KR upp um deild og stýra liðinu áfram „Júlíglugginn kostaði FH þetta tímabil“ Köstuðu svínshöfði inn á völlinn Stuðningsmenn Arsenal mega ekki kaupa áfengi í Mílanó Afar vandræðaleg samskipti Amorims og blaðamanns Slot lofar Xabi Alonso fyrir leik þeirra Ancelotti: Þeir áttu að fresta öllum fótbolta á Spáni Varð fyrir eldingu í fótboltaleik en myndbandið er ekki fyrir viðkvæma „Myndu halda að ég væri nýr Ferguson“ Ljótt brot á Arnóri: „Enginn annar hefði spilað með þessa verki“ Íslandshrellir bjargaði Fulham með ótrúlegum hætti Meiddur Ödegaard gifti sig í leyni Áslaug og Katla féllu en Arnór og Ísak óhultir Snýr aftur í Bestu deildina með ÍBV Sjáðu ævintýralega björgun og mistök Glódísar Sjá meira