Útlit fyrir þrumur og eldingar í dag Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. júní 2016 07:15 Síðdegis í dag verður nær samfelld rigning norðan- og austanlands en sunnan- og vestanlands er möguleiki á dembum. Vísir/Getty
Veðurstofan reiknar með að norðaustlægar áttir verði ríkjandi næstu daga. Síðdegis í dag verður nær samfelld rigning norðan- og austanlands en sunnan- og vestanlands er möguleiki á dembum auk þess sem útlit er fyrir þrumur og eldingum. Norðan- og austanlands má búast við talsverðri rigningu á köflum en sunnan- og vestanlands byggjast smám saman upp allgóðir skúraklakkar með dembum þegar líður á daginn og gæti þeim fylgt þrumur og eldingar. Um helgina dregur úr vindi og úrkomu en í nótt og á morgum má búast við ákveðinni norðan- og norðaustan átt á landinu. Rigning norðan- og austanlands, en þurrt að mestu sunnan og vestantil á landinu, en skúrir gætu fallið á stöku stað.Veðurhorfur á landinu Austan og norðaustan 3-10 metrar á sekúndu, en bætir í vind þegar líður á daginn, 8-15 í nótt og á morgun, hvassast norðvestan- og vestantil og á annesjum norðanlands. Víða skúrir, einkum síðdegis, en fer að rigna norðan- og austanlands þegar líður á daginn og sums staðar talsverð rigning um tíma austantil á landinu. Áfram skúrir eða rigning á morgun, en þurrt að kalla um landið suðvestanvert. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast sunnan- og vestanlands.Á föstudag:Norðlæg átt 8-15 metrar á sekúndu, hvassast norðvestan- og vestantil. Þurrt að mestu á Suður- og Vesturlandi, en rigning eða talsverð rigning um landið norðaustanvert. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast sunnanlands.Á laugardag:Minnkandi norðan átt og víða skúrir, en þurrt að mestu suðvestanlands fyrripart dags. Áfram milt í veðri.Á sunnudag: Norðan og norðvestan 3-8 metrar á sekúndu. Skýjað og lítilsháttar væta norðaustantil á landinu. Bjart með köflum sunnan- og vestanlands og síðdegisskúrir á stöku stað. Hiti frá 6 stigum við norðurströndina, upp í 16 stig á Suðurlandi.Á mánudag: Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað og þurrt að mestu norðan- og austanlands. Annars bjartviðri, en líkur á síðdegisskúrum. Hiti breytist lítið.Á þriðjudag og miðvikudag: Hæg breytileg átt eða hafgola. Skýjað með köflum og víða skúrir, einkum síðdegis. Hiti yfirleitt á bilinu 9 til 15 stig.
Veður Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira