Durant og Westbrook frábærir er Oklahoma jarðaði meistarana | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. maí 2016 07:12
Allt í einu virðist ekkert svo öruggt að liðið sem hefur verið kallað það besta í sögunni í NBA verði ekki meistari annað árið í röð. Golden State Warriors, sem vann 73 leiki í deildarkeppninni, er 2-1 undir í úrslitum vesturdeildarinnar gegn Oklahoma City Thunder en OKC tók meistarana og flengdi þá á heimavelli sínum í nótt, 133-105. Oklahoma City, með Kevin Durant og Russell Westbrook í miklu stuði, var mest 41 stigi yfir í leiknum. Þeir hittu báðir úr ríflega helmingi sinna skota í leiknum en þetta er í fyrsta sinn í úrslitakeppninni á þessu tímabili sem báðir skjóta yfir 50 prósent utan að velli. Saman skoruðu þeir félagarnir 63 stig. Kevin Durant var stigahæstur með 33 stig og átta stoðsendingar en hann hitti úr tíu af fimmtán skotum sínum utan að velli og öllum tólf vítaskotunum. Westbrook skoraði 30 stig, tók átta fráköst og gaf tólf stoðsendingar. Steph Curry var stigahæstur Golden State með 24 stig en hann hitti aðeins úr þremur þristum úr ellefum tilraunum. Klay Thompson kom næstur með átján stig en þeir voru þeir einu sem skoruðu meira en tíu stig fyrir meistarana. Golden State er nú með bakið uppvið vegg og þarf helst að vinna næsta leik sem fram fer í Oklahoma City áður en einvígið heldur aftur til Oakland þar sem fimmti leikurinn fer fram. Í spilaranum hér að ofan má sjá þá Durant og Westbrook fara á kostum en hér að neðan má sjá fimm flottustu tilþrif leiksins.
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Sjá meira