Svo létt hjá Cleveland að LeBron spilaði ekki fjórða leikhluta | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. maí 2016 07:30
Cleveland Cavaliers er aftur komið í forystu í einvíginu gegn Toronto Raptors í úrslitum austurdeildar NBA eftir stórsigur á heimavelli sínum í leik fimm í nótt, 116-78. Cleveland vann fyrstu tvo leikina í rimmunni á heimavelli en tapaði svo tveimur í röð í Toronto. Í nótt átti Toronto aldrei séns en Cleveland var 34 stigum yfir í hálfleik og náði mest 43 stiga forskoti. Þetta var svo auðvelt fyrir Cavaliers að LeBron James þurfti ekki einu sinni að spila fjórða leikhlutann. Þrátt fyrir það skoraði hann 23 stig, tók sex fráköst og gaf átta stoðsendingar. Hann og Kevin Love voru eitraðir í sóknarleiknum en Love skoraði 25 stig og byrjaði leikinn með að hitta úr fjórum fyrstu skotunum sínum. Kyrie Irving lét ekki sitt eftir liggja og skoraði 23 stig. Allt var í baklás hjá Toronto þar sem bakvarðaparið magnaða Kyle Lowry og DeMar DeRozan skoraði mest allra en þó bara 27 stig samalagt. DeRozan setti fjórtán stig og Lowry þrettán stig. Næsti leikur fer fram í Toronto en þar getur Cleveland tryggt sér sigur í einvíginu og komist öðru sinni í röð í lokaúrslitin. Í spilaranum hér að ofan má sjá það helsta úr leiknum og hér að neðan er svo farið í gegnum leikinn í draugsýn.
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira