Milos: Lítum vel út á æfingarsvæðinu en erum hikandi í leikjum Kristinn Páll Teitsson skrifar 17. maí 2016 23:00 Milos Milojevic hefur áhyggjur af stigasöfnun sinna manna. vísir/anton brink „
Ekki spyrja mig afhverju en við mætum ekki til leiks, aftur, í seinni hálfleik því ég veit ekki svarið. Ég þarf að fara að finna lausn á þessu,“ sagði Milos Milojevic, þjálfari Víkings, svekktur eftir jafnteflið í kvöld.Sjá einnig:Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: Víkingur - Valur 2-2 | Óttar Magnús bjargaði stigi fyrir Víkinga „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist og við virtumst ekkert læra af sömu mistökum sem við gerðum gegn Stjörnunni. Við lítum vel út á æfingarsvæðinu en þegar við komum í leikina erum við eitthvað hikandi.“ Milos talaði um að þetta væri súrsætt stig og að Víkingar þyrftu að vera aðeins heppnari í sínum aðgerðum. „Við náum að jafna metin og fáum færi til að klára leikinn en úr því sem komið var þetta súrsætt stig. Ég er á því að maður skapi sína eigin heppni en við virðumst vera að svindla á einhverju öðru sviði eða eigum eitthvað inni því okkur skortir smá heppni.“ Milos tók undir að það væri áhyggjuefni að vera enn án sigurs eftir fjórar umferðir. „Við erum á tvo yfir pari eftir fjóra erfiða leiki. Ég þarf að axla ábyrgð eftir fjóra leiki án sigurs rétt eins og ég myndi hrósa strákunum eftir sigurleiki. Spilamennskan hefur verið í lagi en stigasöfnunin hefur ekki verið eftir því,“ sagði Milos að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Handbolti Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Fótbolti Fleiri fréttir Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Víkingur R. - FH 5-0 | Markaveisla í Víkinni Sjá meira